Innlent

Hæstu styrkirnir til rjúpnarannsókna

Stærð rjúpnastofnsins hefur verið á niðurleið undanfarin ár og miklar hömlur verið settar á veiðar.mynd/kristján
Stærð rjúpnastofnsins hefur verið á niðurleið undanfarin ár og miklar hömlur verið settar á veiðar.mynd/kristján
Umhverfisráðuneytið hefur úthlutað 28,4 milljónum króna úr Veiðikortasjóði í styrki til ýmissa rannsóknarverkefna. Hæsti einstaki styrkurinn fer til rannsókna á rjúpum.

Í kjölfar auglýsingar um umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra bárust umhverfisráðuneytinu tólf umsóknir frá 15 aðilum að upphæð ríflega 50 milljónir króna.

Að því er segir í frétt ráðuneytisins er úthlutunin byggð á umsögnum sem Umhverfisstofnun fékk frá ráðgjafarnefnd með fulltrúum Bændasamtaka Íslands, Skotveiðifélags Íslands og umhverfisverndarsamtaka.

Af einstökum styrkjum að þessu sinni má nefna samtals 10,8 milljóna króna styrki til Náttúrufræðistofnunar Íslands til rannsókna á rjúpu, 1,5 milljónir til Náttúrustofu Austurlands til að rannsaka gæsabeitarálag á bújörðum, 3,2 milljónir til Náttúrustofu Suðurlands til að rannsaka lunda og 3 milljónir til Háskóla Íslands sem rannsakar vetrarfæðu sjófugla á íslenska landgrunninu.

- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×