Innlent

Tilnefningar til Grímunnar 2012 kynntar

Grímuverðlaunin verða afhent 14. júní næstkomandi.
Grímuverðlaunin verða afhent 14. júní næstkomandi. mynd/Páll Bergmann
Tilnefningar til Grímunnar 2012 voru kynntar í Tjarnarbíó í dag. Alls voru 89 verk tilnefnd af leikhúsum og sviðslistahópum til Grímuverðlauna í ár.

Tilnefndar sem sýning ársins eru Afmælisveislan eftir Harold Pinter, Heimsljós eftir Halldór Laxness, Hreinsun eftir Sofi Oksanen, Vesalingarnir eftir Alain Boubil og Claude-Michael Schönberg og Tengdó eftir Val Frey Einarsson.

Þá eru Valur Freyr Einarsson, Auður Ava Ólafsdóttir, Eiríkur G. Stephensen, Þór Tuliníus og Leikhópurinn 16 elskendur tilnefnd sem leikskáld ársins.

Tilnefnd fyrir leikstjórn eru Guðjón Pedersen, Jón Páll Eyjólfsson, Kjartan Ragnarsson, Selma Björnsdóttir og Stefán Jónsson.

Þeir Björn Thors, Hilmir Snær Guðnason, Ingar E. Sigurðsson, Valur Freyr Einarsson og Þröstur Leó Gunnarsson eru tilnefndir sem besti leikari ársins.

Tilnefndar sem leikkona ársins eru Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Kristbjörg Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir.

Grímuverðlaunin verða afhent 14. júní næstkomandi.

Hægt er að sjá tilnefningarnar í heild sinni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×