Innlent

Hjóluðu 740 þúsund kílómetra á þrettán dögum

Sigurvergararnir tóku á móti viðurkenningum sínum í dag.
Sigurvergararnir tóku á móti viðurkenningum sínum í dag.
11.380 þátttakendur frá 666 vinnustöðum hjóluðu 741.450 kílómetra á þeim 13 dögum sem verkefnið Hjólað í vinnuna stóð yfir. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að við það hafi sparast um 133 tonn af útblæstri koltvísýrings og 55.597 lítrar af eldsneyti sem gera um 14 milljónir króna sé miðað við 80kg einstakling sem ekur á fólksbíl.

Sigurvegarar í keppninni voru verðlaunaðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. „Bílaleiga Húsavíkur, Hafnarskóli, Grundaskóli, Samherji, landvinnsla, Advania og Íslandsbanki sigruðu í sínum flokkum og náðu flestum dögum en liðið Tannhjólin frá Advania hjólaði flesta kilómetra eða 5.064 og liðið Meistararnir frá Ófeigi gullsmiðju - Sturtu.is hjólaði 804,7 kílómetra á mann."

Heildarúrslit má finna inn á www.hjoladivinnuna.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×