Hátt í 200 milljón króna lán fór í gistiheimilarekstur 17. desember 2012 19:11
Íbúðalánasjóður veitti 192 milljóna króna lán til leigufélags sem síðan nýtti lánið til gistihúsareksturs. Slík starfsemi er ekki lánshæf samkvæmt reglum Íbúðalánasjóðs. Þær upplýsingar fengust hjá sjóðnum að hann hafi ekki vitað annað en að leigumiðlun ætti að fara fram í húsinu og aldrei hafi verið tilkynnt um að breytingar hafi orðið á þeirri starfsemi. Árið 2010 fékk Rent-leigumiðlun lán frá Íbúðalánasjóði til að kaupa fasteignina á Vatnssíg 11. Alls fékk félagið lánaðar 192 milljónir til 50 ára til kaupanna. Lánakjörin voru hagstæðari en víðast þekktist á markaði á þeim tíma þar sem það leit út fyrir að lántakandinn mynd starfrækja leigumiðlun í húsnæðinu. Þannig nýtti hann sér heimild sem Íbúðalánasjóður hefur til að fjármagna starfsemi sem er til þess fallin að styrkja leigumarkaðinn hér á landi auk þess sem lánakjörin eru ætluð til bygginga eða kaupa á húsnæði sem tilheyra félagslegum úrræðum svo sem sambýlum, dvalarheimilum, vistheimilum og svo framvegis. Starfsemin sem Rent-leigumiðlun stendur fyrir í húsnæðinu sem Íbúðalánasjóður lánaði fyrir á lítið skylt við félagsleg úrræði, og þar er svo sannarlega ekki rekin nein leigumiðlun. Í húsinu við Vatnsstíg er rekið gistiheimili. Eins og sést hér á heimasíðu gistiheimilisins Welcome.is eru 25 fullbúnar íbúðir til leigu fyrir ferðamenn en nóttin næsta júlí kostar til dæmis um 23-28 þúsund krónur og ekkert virðist laust nú í desember. Íbúðalánasjóði er ekki heimilt að lána fé til reksturs af þessu tagi, hvað þá á þeim kjörum sem lánað var á. Þau svör fengust hjá Íbúðalánasjóði aðsjóðurinn hefði ekki fengið fengið upplýsingar um að reka ætti Vatnsstíg sem gistiheimili enda hefði kaupandinn kallast Rent-leigumiðlun. Íbúðalánasjóði hefði ekki borist tilkynning um breyttan rekstur. Þau svör fengust hjá eigendum Rent-leigumiðlunar að svokallaður blandaður rekstur væri stundaður í húsinu, unnið væri að endurfjármögnun lánsins sem væri ekki mjög hagstætt, ekki fengust svör við því hve lengi reksturinn í húsinu hafði verið með þessum hætti.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira