Framkvæmdastjórinn sakaður um frændhygli, sjálftöku og bókhaldsóreiðu Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. nóvember 2012 12:00 Óráðsíu og fjárhagserfiðleika Eirar má rekja mörg ár aftur í tímann en séra Sigurður Helgi Guðmundsson var lengst af framkvæmdastjóri stofnunarinnar. Óvíst er hvort ellilífeyrisþegar sem greiddu tugi milljóna króna fyrir íbúðarrétt hjá Eir fái peningana sína til baka þar sem íbúðirnar eru veðsettar lánastofnunum.
Ýmislegt bendir til að fjárhagserfiðleika og óráðsíu innan Eirar megi rekja mörg ár aftur í tímann í framkvæmdastjórastíð séra Sigurðar Helga Guðmundssonar sem lét af starfi á síðasta ári. Meðal annars lét séra Sigurður Helgi Eir greiða fyrir flugfarseðla dóttur sinnar og fjölskyldu hennar. Séra Sigurður Helgi lét hjúkrunarheimilið greiða fyrir utanlandsferð dóttur sinnar Vilborgar og fjölskyldu hennar í ágúst 2011, en reikningurinn nam 200 þúsund krónum. Fór Vilborg þá með Icelandair til Alicante á Spáni og var þar í tvær vikur ásamt eiginmanni sínum og börnum á kostnað Eirar, en Eir hafði keypt gjafabréf hjá Icelandair sem fjölskyldan nýtti sér. Frá þessu er greint í DV í dag og haft eftir Sigurði Helga að kaupin á utlandsferðinni hafi verið þóknun fyrir lögmannsþjónustu sem tengdasonur hans, Jóhannes Rúnar Jóhannsson hrl. hafði veitt Eir en aldrei krafist greiðslu fyrir. Ekkert kom hins vegar fram í bókhaldi Eirar að um væri að ræða kaup á gjafakorti fyrir fjölskyldu dóttur Sigurðar Helga og enn síður að um hefði verið að ræða greiðslu fyrir lögfræðistörf sem tengdasonurinn hefði unnið fyrir Eir. Það er ýmislegt fleira sem virðist orkar tvímælis í rekstri Eirar. Þannig er séra Sigurður Helgi sakaður um frændhygli í rekstri stofnunarinnar með því að raða ættingjum í góðar stöður, meðal annars konu sinni og dóttur, skipta ítrekað við sama verktakann án útboðs og látið stofnunina kaupa hjúkrunargögn af heildverslun í sinni eigu eftir að hann tók við sem framkvæmdastjóri árið 1993.Farið fram á rannsókn á framkvæmdastjóratíð Sigurðar Helga Magnús L. Sveinsson, stjórnarformaður Eirar, staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að Ríkisendurskoðun hefði verið falið að rannsaka kaupin á utanlandsferðinni. Þá staðfesti hann jafnframt að ósk hefði komið fram í stjórn Eirar um að ráðist yrði í heildarúttekt á framkvæmdastjóratíð séra Sigurðar Helga. "Það eru uppi hugmyndir um að fara í nánari úttekt á ferlinu en það er ekki búið að taka ákvörðun um það á þessu stigi," segir Magnús. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur legið undir gagnrýni vegna aðkomu sinnar að rekstri Eirar en svo virðist sem Vilhjálmur hafi tekið við stöðu framkvæmdastjóra þegar staðan var þegar orðin grafalvarleg. Hann var hins vegar stjórnarformaður meðan séra Sigurður Helgi var framkvæmdastjóri. "Stjórnarmenn voru í góðri trú og Ríkisendurskoðun fór yfir alla reikninga, síðast fyrir árið 2011. Við vorum auðvitað ekki inni í daglegum rekstri. Við treystum því að þetta væri í lagi," sagði Magnús L. Sveinsson í samtali við fréttastofu, en hann tók við stjórnarformennsku í Eir af Vilhjálmi.séra Sigurður Helgi Guðmundsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Eirar á síðasta ári. Vísir / Stefán Karlsson Vísar ásökunum á bug Séra Sigurður Helgi sagði í samtali við fréttastofu að þessar ásakanir væru þvættingur. "Það er ekkert sem orkar tvímælis í rekstrinum," sagði hann. Hann vísaði ásökunum um sjálftöku og frændhygli á bug og sagði að heildverslunin hefði ekki verið í sinni eigu, heldur Skjóls, Eirar og Hrafnistu, hann hefði aðeins komið að stofnun hennar. Tilgangurinn hafi verið að annast sameiginleg innkaup á hjúkrunarvörum. Sigurður Helgi segir að dóttur sín hafi verið í fæðingarorlofi þegar hann hafi látið af störfum. "Dóttir mín hóf störf þarna sem unglingur í ræstingum og hélt áfram eftir því sem tímar liðu. Það má segja að hún hafi unnið sig upp þannig." Sigurður Helgi segist hafa gert grein fyrir flugfarseðlinum. "Þetta var bara greiðsla og ekkert óeðlilegt við hana á nokkurn hátt. Ég var spurður um þetta og gerði grein fyrir þessu."Hvað með þá staðreynd að stjórnarmaður í Eir vill heildarúttekt á framkvæmdastjóratíð þinni hjá stofnuninni, er slík krafa bara úr lausu lofti gripin? "Ef mönnum finnst ástæða til þess að fara fram á slíkt, þá er það hið besta mál að þeir geri það." Eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur greint frá er fjárhagsstaða Eirar í molum, en eigið fé sjálfseignarstofnunarinnar er neikvætt um 385 milljónir og hún því í raun tæknilega gjaldþrota. Óvíst er hvort ellilífeyrisþegar sem greiddu tugi milljóna króna fyrir íbúðarrétt hjá Eir fái peningana sína til baka þar sem íbúðirnar eru veðsettar lánastofnunum. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Sjá meira