42% vilja að Huang Nubo fái að leigja 29. maí 2012 07:00
Ríflega fjórir af hverjum tíu Íslendingum vilja leyfa kínverska athafnamanninum Huang Nubo að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum en tæpur þriðjungur er því mótfallinn, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðust 42 prósent þeirra sem tóku afstöðu mjög eða frekar hlynnt því að leyfa Huang að leigja landið, en 30,7 prósent sögðust því mjög eða frekar andvíg. Um 27,3 prósent sögðust því hvorki hlynnt né andvíg. Nærri helmingur þeirra karla sem afstöðu tók vildi leyfa Huang að leigja Grímsstaði, um 48,1 prósent. Um 29,4 prósent vildu það ekki. Konur virðast síður vilja að af leigunni verði, 35,7 prósent sögðust því hlynnt en 32,2 prósent andvíg. Stuðningsmenn Vinstri grænna skera sig úr stuðningsmönnum hinna stóru flokkanna. Alls sögðust 50 prósent þeirra sem sögðust myndu kjósa Vinstri græn yrði gengið til kosninga nú því andvíg að Huang fái að leigja jörðina, en 31,3 prósent voru því mjög eða frekar hlynnt. Afstaða stuðningsmanna hinna þriggja stóru flokkanna er svipuð. Um 54,2 prósent samfylkingarfólks eru hlynnt því að Huang fái að leigja Grímsstaði en 22,9 prósent eru því andvíg. Alls eru 50,5 prósent sjálfstæðismanna hlynnt því að hann fái að leigja en 26,6 prósent eru á móti. Þá eru 49,1 prósent framsóknarmanna hlynnt leigu en 29,8 prósent andvíg. Hringt var í 1.326 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 23. maí og fimmtudaginn 24. maí. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) á skalanum 1 til 5 ertu því að kínverski kaupsýslumaðurinn Huang Nubo fái að leigja land á Grímsstöðum á Fjöllum? Alls tóku 94,6 prósent í afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira