Innlent

Ákærð fyrir að sparka í lögreglumenn

Konunni er gefið að sök að hafa ráðist á tvö lögreglumenn í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu.
Konunni er gefið að sök að hafa ráðist á tvö lögreglumenn í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu.
Kona á sextugsaldri var í dag ákærð fyrir að hafa ráðist á tvo lögreglumenn við skyldustörf sín í nóvember árið 2010 og sparkað í bringu annars en höfuð hins. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag.

Lögreglumennirnir höfðu handtekið konuna við íbúðarhús í Vesturbæ Reykjavíkur vegna eignaspjalla og flutt hana á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Þegar þangað var komið snerist hún gegn lögreglumönnunum með fyrrgreindum hætti.

Árásin er talin varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga, en samkvæmt henni er refsivert að ráðast með ofbeldi á opinbera starfsmenn meðan þeir gegna skyldustörfum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×