Innlent

Fisvél brotlenti við Kirkjubæjarklaustur

Fisvél. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Fisvél. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Fisvél brotlenti við Kirkjubæjarklaustur fyrr í dag. Tveir menn voru í flugvélinni en þeim varð ekki meint af.

Lögregla er nú með málið til rannsóknar en rannsóknarnefnd flugslysa mun taka við málinu seinna í dag. Ekki er vitað hvað olli slysinu.

Nokkur fjöldi fólks var á svæðinu þegar flugvélin brotlenti en þolmót mótorkross ökumanna fer fram á Kirkjubæjarklaustri í dag.

Þátttakendur og gestir mótsins voru þó aldrei í hættu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×