Tom Cruise geðugur, kurteis og hógvær Kristján Már Unnarsson skrifar 3. júlí 2012 20:00
Kvikmyndaleikarinn heimsfrægi, Tom Cruise, fékk afmælisgjafir í Veiðivötnum í gærkvöldi í tilefni fimmtugsafmælis síns í dag en hann flaug síðan af landi brott fyrir miðnætti, eftir nítján daga dvöl hérlendis. Tom Cruise leið vel á Íslandi, þrátt fyrir allt, og erlenda kvikmyndatökuliðið var mjög ánægt með hversu vel tökurnar á Oblivion heppnuðust hérlendis. Byrjað var strax í gærkvöldi að taka niður kvikmyndabúðirnar í Veiðivötnum en tökum á myndinni á Íslandi lauk í dag með því að nokkur loftmyndaskot voru tekin af íslenskri auðn sem á að tákna jörðina í framtíðinni eftir að hún er orðin óbyggileg. Áður en Tom Cruise yfirgaf tökustaðinn í gærkvöldi náðu Íslendingarnir á vettvangi að færa honum gjafir í tilefni afmælisins, eins og fram kom í viðtali í fréttum Stöðvar 2 við Þór Kjartansson, tökustaðarstjóra Truenorth, en það fyrirtæki annaðist verkefnið hérlendis í samstarfi við Universal-kvikmyndaverið í Hollywood. Tom Cruise hélt síðan af landi brott seint í gærkvöldi, en ung stúlka, Silja Dís Guðjónsdóttir, náði myndum þegar þota hans brunaði í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan 23. Þegar Þór er spurður hvernig Tom kom honum fyrir sjónir er svarið: „Þetta er bara mjög geðugur maður, kurteis og hógvær." Og þrátt fyrir að þarna færi ein skærasta kvikmyndastjarna heims fengu menn góðan vinnufrið. „Við höfum fengið mjög góðan frið og átt gott samstarf," segir Þór og nefnir sérstaklega við veiðivörðinn í Veiðivötnum og veiðimenn. Þarna mátti sjá leikmynd sem virðist eiga að tákna rústir af frægri byggingu og útlendingarnir sögðust ánægðir með hversu vel tökur heppnuðust á Íslandi. „Þeir voru gríðarlega ánægðir með Ísland og fengu í rauninni allar tegundir af birtu og skýjafari. Ísland sýndi sig í bestu mynd." En hvernig leist svo aðalleikaranum á landið og leið honum vel á Íslandi? „Já, ég er í engum vafa um það. Þú sérð það bara sjálfur. Það er hvergi betra að vera heldur en hér," segir Þór og horfir á fjallahringinn í Veiðivötnum. -Funduð þið það á honum? „Ég hugsa það, já." Um 150 Íslendingar unnu við myndina, annar eins fjöldi útlendinga kom til landsins vegna hennar, á annað hundrað bílaleigubíla voru leigðir og tugir trukka og má ætla að um 700 milljóna gjaldeyristekjur sitji eftir í landinu, og kannski er svo ómetanleg Íslandskynning framundan.
Tengdar fréttir Tom Cruise fékk mótorhjól og Íslandskort í afmælisgjöf Tökulið Oblivion myndarinnar hélt Tom Cruise afmælisveislu áður en hann fór af landi brott í gær. Sem kunnugt er fagnar Cruise fimmtugsafmæli í dag. Heimildarmaður Vísis segir að Cruise hafi meðal annars fengið að gjöf vélhjól sem notað var við tökur á myndinni. Þá mun hann jafnframt hafa fengið gamalt Íslandskort að gjöf. 3. júlí 2012 16:47 Fyrstu myndirnar af Cruise í tökum á Íslandi Ítarleg umfjöllun er um myndina Oblivion á vef Daily Mail í dag. Þar segir frá því að Tom Cruise hafi verið staddur á virku eldfjalli í gær við tökur á myndinni en hann mun vera staddur í nágrenni við Veiðivötn. Í fréttinni segir að Cruise virðist hafa skemmt sér gríðarlega vel við tökurnar. Hann hafi gengið um og spjallað um tökurnar við kvikmyndatökuliðið. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að stutt er í að mannkyninu á jörðu verði útrýmt. Persóna Cruise er ein af fáum lifandi og hann verst árásum frá geimverum. 29. júní 2012 13:38 Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar. 2. júlí 2012 15:42 Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Sjá meira
Tom Cruise fékk mótorhjól og Íslandskort í afmælisgjöf Tökulið Oblivion myndarinnar hélt Tom Cruise afmælisveislu áður en hann fór af landi brott í gær. Sem kunnugt er fagnar Cruise fimmtugsafmæli í dag. Heimildarmaður Vísis segir að Cruise hafi meðal annars fengið að gjöf vélhjól sem notað var við tökur á myndinni. Þá mun hann jafnframt hafa fengið gamalt Íslandskort að gjöf. 3. júlí 2012 16:47
Fyrstu myndirnar af Cruise í tökum á Íslandi Ítarleg umfjöllun er um myndina Oblivion á vef Daily Mail í dag. Þar segir frá því að Tom Cruise hafi verið staddur á virku eldfjalli í gær við tökur á myndinni en hann mun vera staddur í nágrenni við Veiðivötn. Í fréttinni segir að Cruise virðist hafa skemmt sér gríðarlega vel við tökurnar. Hann hafi gengið um og spjallað um tökurnar við kvikmyndatökuliðið. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að stutt er í að mannkyninu á jörðu verði útrýmt. Persóna Cruise er ein af fáum lifandi og hann verst árásum frá geimverum. 29. júní 2012 13:38
Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar. 2. júlí 2012 15:42