Mátti ekki neita sölu á kynferðislegu víni 12. desember 2012 05:00 ÁTVR neitaði að hefja sölu á þremur tegundum Tempt Cider á þeim forsendum að framsetning varanna hefði kynferðislegar tilvísanir.
EFTA-dómstóllinn telur ÁTVR óheimilt að neita að selja áfenga drykki á þeim forsendum að umbúðir þeirra brjóti í bága við almennt velsæmi. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) er óheimilt að neita að selja vörur á þeim forsendum að umbúðir þeirra séu gildishlaðnar, ómálefnalegar eða brjóti í bága við almennt velsæmi. Þetta er mat EFTA-dómstólsins sem gaf í gær út ráðgefandi álit vegna dómsmáls sem heildsali höfðaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Forsaga málsins er sú að á árinu 2010 falaðist heildverslunin HOB-vín eftir því að ÁTVR hefði sölu á þremur tegundum áfengisins Tempt Cider frá danska framleiðandanum Royal Unibrew. ÁTVR hafnaði hins vegar að taka vörurnar til sölu þar sem framsetning þeirra þótti kynferðisleg. Í álitsgerð sem Skúli Bjarnason hæstaréttarlögmaður vann fyrir ÁTVR um málið segir þannig meðal annars að í myndskreytingum varanna sé að finna tilvísanir sem lýsa megi sem „léttúðugum eða nautnalegum". HOB-vín kærði ákvörðunina og óskaði Héraðsdómur Reykjavíkur því eftir ráðgefandi áliti frá EFTA-dómstólnum sem nú liggur fyrir. Taldi dómstóllinn að ÁTVR væri óheimilt að hafna sölu á vörum á grundvelli umbúða þar sem það bryti í bága við tilskipanir Evrópusambandsins. „Við fögnum þessum dómi sem þó er auðvitað bara ráðgefandi og það þarf því að klára málið," segir Sigurður Bernhöft, framkvæmdastjóri HOB-vína, og bætir við: „En það sem við sjáum út úr dóminum heitir í einu orði sagt valdníðsla þó það sé ekki sagt berum orðum." Þá segir Sigurður að fari Héraðsdómur Reykjavíkur að ráðum EFTA-dómstólsins muni HOB-vín í kjölfarið óska eftir því að umdeildu vörurnar verði settar í sölu hjá ÁTVR. ÁTVR hefur á síðustu árum ítrekað neitað að selja vörur á þeim forsendum að merkingar varanna hafi verið vafasamar. Hafa þær ákvarðanir byggt á grein í lögum um verslun með áfengi og tóbak þar sem segir að ÁTVR sé heimilt að hafna vörum sem innihalda gildishlaðnar eða ómálefnalegar upplýsingar, gefa til kynna að áfengi auki getu, eða brjóta á annan hátt í bága við almennt velsæmi. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að í kjölfar dómsins verði breytingar gerðar á verklagi. „Við þurfum að skoða hvað þessi dómur felur í sér og í kjölfarið vinnum við það með ráðuneytinu með hvaða hætti verður brugðist við og gerum þær breytingar sem þörf verður á," segir Sigrún.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira