Hugleiða að skrá vélar sínar í Svíþjóð 14. ágúst 2012 08:30 Svifflugfélag Íslands segir starfsemi sína hætt komna. Hér eru Skúli Sigurðsson, Daníel Stefánsson, Kristján Sveinbjörnsson formaður, Stefán Sigurðsson og Kurt Kohle við eina vélina á Sandskeiði. fréttablaðið/stefán
Félagar í Svifflugfélagi Íslands hugleiða að skrá svifflugvélar sínar í Svíþjóð. Þeir segja Flugmálastjórn Íslands fara offari í túlkun og framkvæmd nýrra Evrópureglna. Flugmálastjórn segist hafa fullvissu frá Evrópu um að rétt sé farið að. Svifflugum hefur fækkað um meira en helming á síðustu fjórum árum. „Við vorum með tuttugu og tvær lofthæfar svifflugur fyrir fjórum árum en þær eru innan við tíu núna,“ segir Kristján Sveinbjörnsson, formaður Svifflugfélags Íslands. Hann segir orsökina vera meðal annars þá að Flugmálastjórn Íslands fari offari í túlkun og framkvæmd nýrra Evrópureglna. Þar á hann við svokallaðar Part M-reglur sem tóku gildi síðla árs 2009. Samkvæmt þeim fer fram skoðun hér á landi sem fáar svifflugvélar hafa staðist og segir Kristján að Flugmálastjórn geri meiri kröfur en reglurnar sjálfar geri ráð fyrir. „Við bárum fjögur atriði sem Flugmálastjórn taldi vera kyrrsetningarsök undir EASA, European Aviation Safety Agency, og þar svöruðu menn á þá lund að þrjú væru ekki kyrrsetningarsök og eitt atriði mætti túlka á mismunandi vegu,“ segir hann. Hann segir enn fremur að tekin verði ákvörðun um það á fundi félagsins í haust hvort félagsmenn skrái vélar sínar hjá annarri Evrópuþjóð. Þá kæmu eftirlitsmenn hingað til lands til að taka vélarnar út. „Já, við höfum verið að velta því fyrir okkur að skrá þær þar sem viðhorf gagnvart svifflugum er annað. Við höfum rætt við Svía um þau mál og þar er búið að bjóða okkur velkomna,“ segir hann. Þó reglurnar séu alls staðar þær sömu segir hann það geta verið misjafnt hvernig þær eru túlkaðar og útfærðar. „Ég veit að það hefur verið flótti frá Belgíu yfir til Þýskalands vegna slíkra mála,“ segir hann. „Við höfum líka átt fundi með EASA og úttektaraðilum þar og þar hefur komið alveg skýrt fram að við stöndum rétt að,“ segir Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar. „Það er náttúrulega alltaf leiðinlegt ef það er skráð annars staðar en á Íslandi en telji þeir að það verði til hægðarauka þá getum við ekkert stöðvað það.“ Kristján segir mikið í húfi. „Þetta er nú bara sjálfboðavinna hjá okkur en ef við ættum að fullnægja þeim kröfum sem Flugmálastjórn setur okkur alveg út í ystu æsar þá þyrftum við að hafa einn til tvo starfsmenn bara til að sinna þessari pappírsvinnu,“ segir hann. „Því höfum við ekki efni á svo það er verið að kippa grundvellinum undan félaginu.“ jse@frettabladid.is
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira