Innlent

Einn mesti tónlistarviðburður síðari tíma í Hörpu í kvöld

Einn mesti tónlistarviðburður síðari tíma á Íslandi á sér stað í Hörpu í kvöld þegar Fílharmóníusveit Berlínar heldur þar tónleika.

Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð hljómsveitarinnar um Evrópu. Tónsprotanum sveiflar aðalhljómsveitarstjóri sveitarinnar, Sir Simon Rattle.

Óhætt er að segja að beðið hafi verið tónleikanna með nokkurri eftirvæntingu, enda er Fílharmóníusveit Berlínar álitin ein allra besta hljómsveit heims í dag. Miðar á tónleikana seldust upp á mettíma.

Þeir sem ekki komast á tónleikana geta hins vegar hlustað á heima í stofu í beinni útsendingu Rásar 1. Útsendingin hefst klukkan 19.27. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Ligeti, Wagner, Debussy, Ravel og Schumann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×