Segir fráleitt að stjórnarformaður kanni greiðslugetu lántakenda Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. maí 2012 10:30 Frá aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Frá vinstri Ragnar Z. og Jón Þorsteinn, ásamt Reyni Karlssyni, verjanda sínum. „
Það er ósannað og styðst ekki við gögn að ákærði Jón hafi tekið ákvörðun um lánveitinguna. Hann tók hins vegar þátt í afgreiðslu málsins á stjórnarfundi 19. desember 2008," sagði Reynir Karlsson, verjandi Jóns Þorsteins Jónssonar í málflutningsræðu sinni fyrir Hæstarétti. Þá gagnrýndi Reynir niðurstöðu héraðsdóms í málinu, líka meirihlutans sem vildi sýkna Jón Þorstein, en Reynir sagði að hvorki meirihluti né minnihluti Héraðsdóms Reykjavíkur virtist hafa gefið því gaum að Jón Þorsteinn hafi ekki haft neinu hlutverki að gegna við mat á stöðu lántakenda þegar lánveitingar væru annars vegar. Reynir sagði jafnframt að Jón Þorsteinn hafi vikið af fundi stjórnar þegar fyrra lánið, sem ákært er fyrir í málinu, hafi verið afgreitt í október 2008. Exeter Holding var eignalaust félag í eigu Ágústs Sindra Karlssonar sem fékk samtals 1,1 milljarð króna í tveimur hlutum að láni hjá Byr í október og desember 2008 til að kaupa verðlítil stofnfjárbréf eftir hrun af MP banka. Sakborningar í málinu voru ákærðir fyrir umboðssvik. Fyrir að hafa misnotað stöðu sína hjá Byr og þannig skapað fjártjónshættu fyrir sparisjóðinn. „Dettur einhverjum það í hug að Monika Caneman (stjórnarformaður Arion banka innsk.blm) eða Friðrik Sophusson stjórnarformaður Íslandsbanka kanni greiðslugetu lántakenda hjá þessum bönkum? Auðvitað ekki. Samt sem áður skauta bæði minnihluti og meirihluti yfir þetta og láta eins og þetta sé sjálfsagt mál, að stjórnarformaður eigi að kanna greiðslugetu lántakenda," sagði Reynir um niðurstöðu Héraðsdóms. Reynir sagði jafnframt að staða Byrs hafi verið sterk þegar fyrri hluti lánsins var afgreiddur. „Þá var sparisjóðurinn bókstaflega að springa úr peningum," sagði Reynir. Hins vegar hafi tíu mánaða uppgjör sýnt miklar afskriftir, en þetta hafi ekki verið sérstakt áhyggjuefni stjórnar. Ekkert hafi bent til þess að sparisjóðurinn væri að fara á hausinn. Fyrst í mars 2009 hafi ársuppgjör legið fyrir. Reynir sagði að innlán hefðu aukist mikið í Byr eftir hrun. Peningarnir hafi leitað þangað eftir fall bankanna og sú staðreynd hafi sýnt traust almennings á sjóðnum. „Þetta skiptir máli þegar við erum að velta fyrir okkur hvað menn máttu vita," sagði Reynir.
Tengdar fréttir Vill ómerkja dóm vegna vanhæfis dómara Sérstakur saksóknari vill að Hæstiréttur ógildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu Exeter-máli vegna vanhæfis eins dómarans sem myndaði meirihluta í málinu á neðra dómsstigi. Þetta kom fram í málflutningi fyrir Hæstarétti í morgun. 11. maí 2012 08:30 Málflutningur í Exeter-málinu Málflutningur í Exetermálinu svonefnda fer fram í dag í Hæstarétti. Málið snýst um meint umboðssvik vegna útlána Byr sparisjóðs til félagsins Exeter Holding. Lánið var notað til þess að kaupa stofnfjárbréf af MP banka og tveimur stjórnarmönnum Byrs á yfirverði. 11. maí 2012 08:07 "Hann hafði ekki heimild til að kasta peningum út um gluggann“ Björn Þorvaldsson saksóknari gagnrýndi dóm meirihluta Héraðsdóms Reykjavíkur í Exeter málinu mikið í málflutningi fyrir Hæstarétti og sagði niðurstöðuna byggja á misskilningi. Björn fór fram á fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi yfir tveimur hinna ákærðu í málinu. 11. maí 2012 09:45 Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira
Vill ómerkja dóm vegna vanhæfis dómara Sérstakur saksóknari vill að Hæstiréttur ógildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu Exeter-máli vegna vanhæfis eins dómarans sem myndaði meirihluta í málinu á neðra dómsstigi. Þetta kom fram í málflutningi fyrir Hæstarétti í morgun. 11. maí 2012 08:30
Málflutningur í Exeter-málinu Málflutningur í Exetermálinu svonefnda fer fram í dag í Hæstarétti. Málið snýst um meint umboðssvik vegna útlána Byr sparisjóðs til félagsins Exeter Holding. Lánið var notað til þess að kaupa stofnfjárbréf af MP banka og tveimur stjórnarmönnum Byrs á yfirverði. 11. maí 2012 08:07
"Hann hafði ekki heimild til að kasta peningum út um gluggann“ Björn Þorvaldsson saksóknari gagnrýndi dóm meirihluta Héraðsdóms Reykjavíkur í Exeter málinu mikið í málflutningi fyrir Hæstarétti og sagði niðurstöðuna byggja á misskilningi. Björn fór fram á fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi yfir tveimur hinna ákærðu í málinu. 11. maí 2012 09:45