Frágangur vegriða víða dauðagildra 5. júlí 2012 05:00 Banaslys varð við þjóðveg 1 árið 2006 þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að bíllinn flaug af vegriðinu og í ána. Vegriðsendinn hefur verið lagfærður. mynd/ólafur guðmundsson
Frágangi vegriða á Íslandi er mjög ábótavant að mati Ólafs Guðmundssonar, fulltrúa EuroRAP á Íslandi. Sé ekki rétt gengið frá þeim geta þau verið dauðagildra. Stjórnvöld fylgjast ekki nógu vel með þróuninni í nágrannalöndunum. Frágangur á vegriðum á Íslandi er ófullnægjandi að mati eftirlitsaðila EuroRAP á Íslandi. „Hér á Íslandi eru vegriðsendar látnir ganga ofan í jörðina. Sums staðar erlendis er þessi frágangur bannaður,“ segir Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi. EuroRAP er verkefni regnhlífarsamtaka bifreiðaeigendafélaga í Evrópu og gengur út á að hafa eftirlit með vegum og sjá til að þeir séu í samræmi við evrópsk viðmið. Vegriðum er komið fyrir við þjóðvegi þar sem sérstök hætta steðjar að vegfarendum í umhverfi vegar. Vegrið eru til dæmis reist við brýr, utan um krappar beygjur og milli vegar og mikils bjargs eða fjallshlíðar. „Nýlegt dæmi um slys þar sem vegrið gengur ofan í jörðina er þegar bíll ók upp á vegrið og endaði úti í Laxá á Ásum. Ástæðan fyrir því að Bretar bönnuðu svona frágang var að þar voru fimm ungmenni í bíl sem fór upp á svona enda. Bíllinn flaug svo hátt upp í loftið að hann lenti undir brúargólfi og afhausaði farþegana. Þá sögðu Bretar hingað og ekki lengra.“ Ólafur segist vita um nokkur íslensk dæmi um banaslys vegna þess að bílar hafi farið í loftköstum út fyrir veg og jafnvel endað í ám. Um ástæður þess að ástandi vegriða á Íslandi sé ábótavant segir Ólafur einfaldlega að andvaraleysi stjórnvalda sé um að kenna. Það sé virkilega bagalegt þar sem umferðarslys orsaka flest ótímabær andlát hér á landi. „Menn eru ekki að fylgjast nógu vel með. Það vantar kröfurnar hér og stefnuna í þessum málaflokki,“ segir Ólafur. „Það má ekki flytja inn bíl nema hann uppfylli allar kröfur og það sama er með brauðristir. Það er allt í lögum. Það er hins vegar ekkert í lögum um hvernig vegir eiga að vera. Það eru fullt af stöðlum um ljósastaura, vegrið og yfirborðsmerkingar og allt þetta dót. En það stendur hvergi í lögum að það eigi að fara eftir þessu. Vegagerðinni er bara sagt: „Smíðið hér veg og ekki eyða peningum í hann.““ Ólafur vill þó líka benda á framkvæmdir sem standast kröfur. „Allt sem er gert í Reykjavík í dag er í lagi. En það eru úti um allt land kolvitlausir endar og meira að segja endar sem ganga beint út í loftið. Það má til dæmis finna þannig á Gullinbrúnni.“ „Ísland er þróunarland í vegagerð,“ segir Ólafur enn fremur og bendir á að fólk verði að átta sig á að litlu hlutirnir skipti líka máli. „Það er alltaf verið að tala um það stóra eins og að grafa göng eða byggja stór mannvirki.“birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Sjá meira