Ekki víst að hvítabjörninn verði felldur Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 5. júlí 2012 12:10 Skytturnar við þyrlu Landhelgisgæslunnar. Spurning hvort þeirra verður þörf í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hélt í morgun áfram leit sinni hvítabirninum sem menn telja sig hafa séð á Húnaflóa í gær. Skytta er um borð í vélinni en tekið verður mið af aðstæðum hvort dýrið verði fellt, finnist það á annað borð. Það voru ítalskir ferðamenn sem töldu sig sjá til bjarnarins í gær. Lögregla hefur þó enn ekki náð tali af fólkinu. „Við höfum ekki fundið þá. Það er talið að þeir séu á gráum jeppling, en við erum ekki búnir að finna þá," segir Kristján Þorbergsson yfirlögregluþjónn á Blönduósi. Þyrla Gæslunnar fór til leitar í gær og hætti henni á tólfta tímanum í gærkvöldi. Leitin hófst að nýju klukkan tíu í morgun og verður farið allan Húnaflóann og meðfram ströndinni. „Við bíðum bara átekta hvar eigi helst að bera niður. Við bíðum eftir fréttum frá þyrlunni og eins ef einhverjar tilkynningar berast frá fólki í landi." Skytta er um borð í þyrlunni og segir Kristján það vera viðtekna venju í leit af þessu tagi. „Það er nú lítið gagn af því að vera að leita og þurfa að henda í hann grjóti ef hann er á stað þar sem hann veldur hættu, þannig að ég held að það sé nú bara regla." Ekki er þó endilega víst að dýrið verði fellt, finnist það á annað borð. „Það fer allveg eftir aðstæðum hvar hann er þegar hann finnst. Ómögulegt er að segja til um það á þessu stigi."
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sjá meira