Innlent

Útgefnum vegabréfum fjölgar áfram milli ára

Útgáfa vegabréfa heldur áfram að aukast á milli ára. Í október s.l. voru gefin út 3.365 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 2.653 vegabréf í október í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 26,8 % milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar má sjá að útgáfa vegabréfa náði hámarki í júlí s.l. en í þeim mánuði voru tæp 7.000 vegabréf gefin út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×