Skrásetja hundruð eyðibýla 20. júní 2012 08:00 Í sumar mun hópurinn skoða eyðibýli á öllu Vesturlandi og Norðausturlandi, en endanlegur fjöldi bygginganna mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust. Mynd/Steinunn Eik Egilsdóttir
Ljóst er að mörg hundruð eyðibýli eru á Íslandi. 103 yfirgefin hús voru skrásett og könnuð í fyrra og heldur verkefnið áfram í sumar. Alltaf að færast í aukana að fólk geri upp hús, segir forsvarsmaður verkefnisins. Mörg hundruð eyðibýli er að finna á Íslandi. Ekki liggur enn fyrir nein heildstæð opinber skrá um þau, en í fyrra voru stofnuð samtök sem munu láta kanna og skrásetja fjölda yfirgefinna íbúðarhúsa um land allt. Alls voru skrásett 103 eyðibýli síðasta sumar þegar kannaðar voru þrjár sýslur; A-Skaftafellssýsla, V-Skaftafellssýsla og Rangárvallasýsla. Gísli Sverrir Árnason er formaður félagsins Eyðibýli – Áhugamannafélag, sem er ábyrgt fyrir verkefninu. Félagið fær til sín hóp háskólanema á hverju sumri til að rannsaka húsin. Í ár samanstendur rannsóknarteymið af háskólanemum í arkitektúr og fornleifafræði. Gísli segir erfitt að segja til um nákvæman fjölda eyðibýla, en ljóst sé að miðað við tölur síðasta árs skipta þau hundruðum. Skilgreining rannsóknarinnar á eyðibýli er yfirgefið íbúðarhús, sem þó er enn með þaki og er því ekki í algjörri rúst eða niðurníðslu. „Í fyrra var algengt að byggingarnar stæðu við hliðina á núverandi húsnæði jarðarinnar. En landslagið er vissulega annað á Norðausturlandi, þar sem þau standa yfirleitt ein og stök.“ Gísli segir að eftir því sem nær þéttbýli dragi aukist líkurnar á því að hús hafi verið gerð upp eða verið sé að gera þau upp. Slíkt sé ekki eins algengt á strjálbýlli svæðum. „Þó urðu þau vör við í fyrra á Langanesi og Melrakkasléttu að verið væri að gera þau upp,“ segir Gísli. „Þar er verið að bjarga eyðibýlum, sem er mjög jákvæð þróun.“ Hann segir allan gang vera á því hverjir eigendur húsanna séu; allt frá núverandi bændum yfir í ríkið og bankana. Hópurinn fór af stað á ný þann 11. júní síðastliðinn og mun skoða Þingeyjarsýslurnar báðar og norðausturhorn landsins, sem og allt Vesturland frá Hvalfirði. „Næst eru það Mýrarnar, Borgarfjarðarsýsla og Dalirnir á Vesturlandi,“ segir Gísli. „Ég get ímyndað mér að þar verði töluvert af húsum.“ Verkefnið er meðal annars styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Fóturinn tekinn af Glettu eftir að hún steig í minkagildru Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sjá meira