Var handtekinn vegna morðs - fær 200 þúsund í bætur 20. júní 2012 11:31
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmanni 200 þúsund krónur í miskabætur í síðustu viku en hann var handtekinn í tengslum við morðið á Hannes Þór Helgasyni, sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson var dæmdur fyrir. Hann var í haldi lögreglu í um sólarhring. Maðurinn var handtekinn þremur dögum eftir morðið í ágúst 2010 en maðurinn var fyrrverandi kærasti unnustu Hannesar og hafði lögreglan þær upplýsingar undir höndum að þau hefðu haft samneyti eftir að konan og Hannes tóku saman. Fram kemur í dóminum að lögreglu hafi strax grunað að um ástríðuglæp væri að ræða. Þegar lögreglan fékk fyrrgreindar upplýsingar í hendur var maðurinn handtekinn, húsleit gerð á heimili hans auk þess sem maðurinn gekkst undir læknisskoðun. Föt fundust á heimili mannsins og var talið að blettur í þeim væri blóð. Daginn eftir kom þó í ljós að ekki var um blóðblett að ræða. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að aðgerðir lögreglu voru eðlilegar og réttmætar. Þá var ekki fallist á það að aðgerðin hafi ekki verið í samræmi við reglur eða hún verið á einhvern hátt óeðlileg. Aftur á móti segir í niðurstöðu dómsins að maðurinn eigi samkvæmt lögum rétt á miskabótum af hálfu Gunnar Rúnars sem síðar var dæmdur fyrir morðið. Telur héraðsdómur því rétt að bæta honum þann miska, sem telja má að hann hafi hlotið vegna handtöku hans og vistunar í fangaklefa, enda verður ekki litið svo á, samkvæmt gögnum málsins, að hann hafi valdið eða stuðlað að þessum aðgerðum lögreglu. Þannig voru honum dæmdar 200 þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira