Margir leita eingöngu aðstoðar í desember BBI skrifar 26. desember 2012 12:40 Vilborg Oddsdóttir.
Jólin eru öðru vísi tími hjá Hjálparstofnun kirkjunnar. Hjálparstarfið er starfrækt allt árið en í desember leita margfalt fleiri aðstoðar en á öðrum árstímum. „Það eru fjölskyldur úti í bæ sem þrauka nánast allt árið. En desember er erfiður mánuður þannig að margir leita eingöngu í desember til hjálparstofnana," sagði Vilborg Oddsdóttir, frá Hjálparstofnun kirkjunnar í viðtalsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. „Sömuleiðis er desember sá mánuður sem margir vilja gefa og láta gott af sér leiða," bætti hún við. Það er því talsvert meira álag á hjálparstofnunum um jólin en starfið er þrátt fyrir allt mjög gefandi. „Maður mætir oft gleðitárum þegar maður veitir aukaaðstoð yfir jólin," sagði Vilborg. Vilborg ræddi hjálparstörf og hátíðarhöld í útvarpsþáttinum ásamt séra Ólafi Jóhannssyni presti í Grensáskirkju. „Fyrir hrun áttu allir að fá svo ofboðslega stórar jólagjafir," sagði Vilborg og telur að venjulegt fólk hafi átt í miklum erfiðleikum með þá kröfu. „Svo fannst mér eftir hrun að við værum aðeins búin að ná jólunum niður á jörðina. En það var held ég bara eitt eða tvö ár. Nú erum við bara farin af stað aftur. Ég meina var ekki spjaldtölva jólagjöfin í fyrra?" Þáttargestir voru sammála um að samanburður af slíkum toga væri fremur óheppilegur, einkum fyrir börn sem ættu erfitt með að skilja hvers vegna sumir fá æpandi dýrar jólagjafir meðan aðrir fá eitthvað minna. Hér að ofan má heyra viðtalið í heild sinni.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira