Átta Íslendingar í haldi í Danmörku - höfuðpaurinn íslenskur Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. september 2012 12:00
Íslendingarnir sem flæktir eru í risastórt fíkniefnamál í Danmörku eru átta talsins. Þeir eru allir í haldi þar ytra. Talsmaður dönsku fíkniefnalögreglunnar segir að höfuðpaurinn í málinu sé Íslendingur og hann lofar samstarf dönsku lögreglunnar við þá íslensku í málinu. Lögreglan hefur hingað til verið þögul sem gröfin vegna þessa máls en í dag gaf danska lögreglan út tilkynningu vegna málsins. Þar kemur fram að rannsókn málsins hafi hafist í maímánuði og verið samstarfsverkefni lögreglunnar í Danmörku, Noregi og Íslandi. Flestir hinna grunuðu í málinu eru íslenskir eða átta einstaklingar, en alls eru ellefu í haldi vegna málsins. Lögregla fylgdist lengi með hinum grunuðu og fljótt kom í ljós að höfuðpaurinn var Íslendingur búsettur á Spáni, sem fréttastofan hefur heimildir fyrir að sé Guðmundur Ingi Þóroddsson, eins og fram kom í fréttum fyrr í vikunni. Hann hefur áður hlotið þungan dóm fyrir fíkniefnabrot. Steffen Thaaning Steffensen, yfirmaður deildar sem rannsakar skipulagða glæpastarfsemi, staðfestir við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis að höfuðpaurinn sé 38 ára Íslendingur. Í ágúst komst lögreglan á snoðir um að lagt væri á ráðin um smygl á fíknirefnum frá Hollandi til Danmerkur og um miðjan mánuðinn var 54 ára gamall maður frá Chile, með franskan ríkisborgararétt, handtekinn við komuna til Danmerkur. Í bifreið hans fundust 12 kíló af amfetamíni. Ekki var greint frá handtökunni þar sem lögreglan taldi sig vita að von væri á enn stærri sendingu skömmu síðar. Þann þrettánda september voru tveir smyglarar teknir til viðbótar. Um er að ræða Íslendinga um tvítugt. Í bifreið þeirra fundust 22 kíló af amfetamíni og um 600 grömm af alsælu. Í framhaldinu voru fleiri handteknir vegna málsins, þar á meðal hinn grunaði höfuðpaur. Hinir Íslendingarnir í haldi eru 49 ára, 34 ára og 28 ára. Steffen lofsamar samstarf lögregluembættanna á Norðurlöndunum í þessu máli.
Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira