Kjúklingatollar of háir - fjárhagslegt tjón hjá neytendum 27. september 2012 17:32
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið til þess að greiða innflutningsfyrirtækinu Innnes ehf. tæplega 400 þúsund krónur vegna framkvæmdar og fyrirkomulags tollkvóta á landbúnaðarafurðum. Af hálfu Innnes ehf. var gerð krafa til fjárgreiðslu úr ríkissjóði vegna oftekinna tolla. Forsaga þessa máls er að með reglugerðum árið 2009 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á tilteknum landbúnaðarvörum ákvað þáverandi landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, að miða svokallaðan tollkvóta við verð, þ.e. verðtoll, en ekki magn. Fyrirkomulag þetta var svo endurtekið árin 2010 og 2011. Í tilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu segir að með ákvörðun sinni breytti ráðherrann út frá þeirri framkvæmd sem áður hafði tíðkast en frá árinu 1995 til ársins 2008 hafði magntolli ávallt verið beitt, þ.e. tiltekið gjald lagt á hvert innflutt kíló. Fól þessi breyting í sér verðhækkun á tollkvótum en kvótum þessum er ætlað hið gagnstæða - tilgangur þessara breytinga var því að hækka verð á innfluttum landbúnaðarvörum. Í kjölfar ákvörðunar ráðherra voru athugasemdir gerðar við þá breytingu sem hefur leitt til gjörbreyttra markaðsforsendna og óþarfa tjóns fyrir neytendur sem og innflytjendur. Í kjölfarið, þ.e. í júní 2010, beindu SVÞ kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar ráðherra um tollkvóta varðandi innflutning á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti. Niðurstaða umboðsmanns var sú að hann taldi að þær heimildir sem ráðherra eru veittar til ákvörðunar um álagningu tolla samkvæmt ákvæðum tollalaga og búvörulaga samræmdust ekki ákvæðum stjórnarskrárinnar. Svo segir í tilkynningunni að það sé ljóst að brot ráðherra hefur haft í för með sér verulegt fjárhagslegt tjón, bæði fyrir neytendur sem og almenning. Ákvarðanir stóðu því í vegi fyrir að unnt hafi verið að flytja inn landbúnaðarvörur á samkeppnishæfu verði í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira