Nikki er eini starfsmaður lögreglunnar í Vaughn 27. september 2012 22:00 Athugið að myndin er úr safni.
Íbúar smábæjarins Vauhgn í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum, eru heldur uggandi yfir öryggi bæjarbúa þessa dagana. Kannski eru áhyggjur þeirra eðlilegar en eini fulltrúi lögreglunnar í bænum er fíkniefnahundurinn Nikki. Og þó fíkniefnatíkin Nikka sé eflaust frábær starfskraftur, eiga glæpamenn líklega frekar auðvelt með að snúa á hana, sennilega þarf ekki meira en eina safaríka steik til. Ástæðan fyrir því að Nikka er sú eina sem er eftir af lögregluliði bæjarins sem telur um 500 íbúa er sú að lögreglustjórinn sjálfur, Ernest "Chris" Armijo, ákvað að segja upp störfum þar sem hann mátti ekki bera skotvopn. Lög í ríkinu kveða á um að þeir sem hafi gerst brotlegir við lög megi ekki bera byssur. Lögreglustjórinn skuldar nefnilega stórfé í meðlagsgreiðslur. Raunar virðist lögreglustjórinn ekki sá heiðarlegasti í bænum því hann hefur einnig verið sakaður um að selja riffla í eigu bæjarins og hirða ágóðann sjálfur. Lögreglufulltrúinn í bænum, sem er mennskur vel að merkja, þurfti að hætta störfum eftir að hann var fundinn sekur um líkamsárás á síðasta ári. Bæjarbúar hafa krafið saksóknara bæjarins um svör en hann segir íbúa ekki þurfa að hafa áhyggjur. Hann benti meðal annars á að breska lögreglan bæri ekki skotvopn. Ekki er búið að ákveða hvort nýr lögreglumaður verði ráðinn á næstu dögum, þangað til mun Nikki hafa vökult auga með bæjarbúum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Sjá meira