Gestur í Heiðmörk sleginn yfir umgengni - fann dömubindi og glerbrot 3. júní 2012 13:34 Rusl í Heiðmörk. Guðbergur tók þessar myndir þegar hann gekk í gegnum Heimörk í gær. „
Fólk er að ganga örna sinna þarna," segir Guðbergur Guðmundsson sem var á ferð í Heiðmörk í gærdag en hann var sleginn yfir slæmri umhirðu á svæðinu, en þar mátti finna rusl út um allt, líkt og meðfylgjandi myndir sýna. Mikið af fólki lagði leið sína til Heiðmerkur í gærdag í blíðunni en svo virðist sem ekki hafi allir hugað að umhverfi sínu. Guðbergur segir að aðkoman hafi verið hræðileg, raunar svo slæma að hann ákvað að taka sjálfur til ásamt konu sinni. „Ég meina, hvað átti maður eiginlega að gera," segir Guðbergur sem er undrandi á hegðun gesta Heiðmerkur. „Maður sá glerbrot þarna og meira að það segja dömubindi og fleira. Það er bara eins og fólki sé alveg sama," segir Guðbergur um umgengnina. „Maður veltir eiginlega bara fyrir sér hvað sé að þessu fólki sem hagar sér svona. Maður sá þetta ekki áður fyrr, þegar fólk sá sóma sinn í að taka til eftir sig," segir Guðbergur sem telur skýringuna þessa: „Þjóðfélagið er bara að verða sjúkt. Það stendur bara eitt stór „Ég" á bakinu á þessu fólki." Guðbergur tekur þó fram að ekki séu allir slæmir hvað þetta varðar. Hann bendir á að líklega hafi vel yfir þúsund manns heimsótt svæðið um helgina. Það er Skógræktarfélag Reykjavíkur sem sér um umhirðu á svæðinu.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Öll hin látnu um og undir tvítugt „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Sjá meira