Steingrímur vill skattaívilnanir fyrir sjómenn í framtíðinni 3. júní 2012 15:48 Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, sagði í hátíðarræðu sinni í tilefni af sjómannadeginum í dag að hann vildi ekki varpa frekari skugga á hátíðarhöldin með því að ræða um harðvítug átök LÍÚ og ríkisstjórnarinnar. „Það kynni ég að hafa látið eftir mér ef mál hefðu ekki skipast með þeim hætti sem raun bar vitni í gær," sagði Steingrímur og vitnaði þar til mótmælaaðgerða LÍÚ en nær allur skipafloti Íslendinga mun verða bundin við bryggju í næstu viku í svokölluðu neyðarkalli útgerðarmanna. Steingrímur sagði að í ljósi þess að í dag er hátíðisdagur sjómanna, lögbundnir frídagar þeirra og samvera með fjölskyldum í landi standa yfir, vildi hann fyrst og fremst nálgast málin frá þeim sjónarhóli sem að sjómönnum snýr og fullvissa sjómenn um að engu í þessum málum væri stefnt gegn hagsmunum sjómanna. „Þessi mál snúast ekki um að veiða minna af fiski eða skerða kjör eða skiptahlutföll sjómanna. Þvert á móti stendur til að reyna eftir því sem slíkt er hægt í gegn um lög um stjórn fiskveiða að treysta betur umgjörð um kjaramál sjómanna og reyna að undirbyggja að allur lögskráðum sjómönnum skuli tryggðir kjarasamningar og einhver umsamin lágmarkskjör," sagði Steingrímur svo. Þá tók Steingrímur fram að það hafi ekki verið gert með gleði að afnema sjómannaafsláttinn. Hann bætti við að hann væri þeirra skoðunar að þegar eðlilegri aðstæður væru uppi í ríkisfjármálum, þá sæi hann fyrir sér sérstakar skattalegar ívilnanir fyrir sjómenn. „Hvort það yrði þá aftur í formi einhvers konar sjómannafrádráttar eða skattalegra ívilnana sem tengdust fæðis- eða fatapeningum eða á öðru formi læt ég ósagt og tek fram að hér tala ég fyrir mig en ekki hönd annarra," sagði Steingrímur. Hann lauk svo ræðu sinni á eftirfarandi orðum: „Það er gæfa að fæðast Íslendingur, þannig er það og þannig skal það verða. Og hin gæfusama þjóð stendur í þakkarskuld við eina stétt manna umfram flestar aðrar. Í dag er þeirra hátíð."Hér má lesa ræðuna í heild sinni.
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira