Þrýst á sjómenn að taka þátt í mótmælaaðgerðum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 6. júní 2012 19:46
Útvegsmenn beita sjómönnum fyrir sig í kvótadeilunni og þrýst er á suma þeirra að taka þátt í mótmælaaðgerðum. Þetta segir formaður Sjómannasambands Íslands. Útgerðarmenn hafna þessu. Nær allur fiskiskipaflotinn hefur verið bundinn við bryggju síðan um helgina þegar útgerðarmenn stöðvuðu veiðar í mótmælaskyni við kvótafrumvörpin. Á morgun á svo að sigla tugum skipa til Reykjavíkur vegna útifundar sem haldinn verður. „Þar sem að koma þá saman útvegsmenn og starfsfólk í sjávarútvegi bæði sjómenn og aðrir. Það er svona lokapunkturinn núna í þessu ákalli til stjórnvalda um að hlusta á þær athugasemdir sem að hafa komið fram frá fjölda aðila og sérfræðingum varðandi fiskveiðistjórnunarfrumvörpin og að það verði vandað til verka," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Formaður Sjómannasambands Íslands segir félagið sammála gagnrýni útgerðarmanna á kvótafrumvörpin að miklu leyti. Vegna kjaradeilu sinnar og útgerðarmanna ætli það hins vegar ekki að taka þátt í aðgerðunum á morgun. Í ljósi þessa sé óeðlilegt að félagsmenn þeirra hafi verið boðaðir á sjó til að sigla skipunum til Reykjavíkur vegna fundarins. „Ef að einhver sambönd, hvort sem það er LÍÚ eða Sjómannasambandið, ákveða að fara í aðgerðir þá eiga þeir að gera það sjálfir á sínum forsendum en ekki beita öðrum fyrir sig sem mér finnst þeir vera að gera," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Sævar segir suma þeirra finna fyrir þrýstingi á að taka þátt í aðgerðunum. „Þeir segja að þeim hafi nánast verið uppálagt að mæta. Þetta sé bara skyldumæting." Útgerðarmenn standi ekki rétt að málum. „Þetta er óeðlileg aðferðafræði og ég efast um lýðræðið í þessu ef menn beita atvinnurekendavaldinu til að fá menn til þess að mæta á útifundi sem þeir eru að boða til." Útgerðarmenn hafna því að þrýst sé á sjómenn að taka þátt í mótmælunum og bendir á að áhafnir margra skipa hafi lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar. „Ég skora bara á sjómenn að það séu einhverjir sem virkilega vilja taka þátt í þessu fari þarna en aðrir ekki," segir Friðrik.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira