Íslenskur snekkjugerðarmaður ákærður fyrir skjalafals í Dúbaí 27. ágúst 2012 23:30 Dúbaí.
Rétt rúmlega fertugur snekkjusmiður frá Íslandi hefur verið ákærður fyrir skjalafals í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann gengur nú laus gegn tryggingu sem hljóðar upp á tæplega tvær milljónir íslenskrar króna. Það er fréttavefurinn The National sem greinir frá málinu í dag en þar kemur fram að maðurinn, sem er ekki nefndur á nafn í greininni, hafi falsað skjalið þegar hann höfðaði dómsmál gegn manni frá furstadæminu Abu Dhabi, sem hann smíðaði snekkju fyrir. Málsatvik eru dálítið sérkennileg en svo virðist vera sem íslenski maðurinn hafi orðið fórnarlamb óheiðarlegra viðskiptahátta heimamanns. Þannig leitaði sá íslenski eftir fjárfesti til þess að setja á fót fyrirtæki sem smíðar lúxussnekkjur. Heimamaðurinn sagðist hafa áhuga á að vera bakhjarl í fyrirtækinu en með því skilyrði að hann smíðaði snekkju handa honum. Sem og Íslendingurinn gerði. Heimamaðurinn fékk snekkjuna afhenta samkvæmt blaðinu en sveik aftur á móti samkomulagið og greiddi ekkert fyrir snekkjuna og neitaði að auki að skila henni þegar þess var krafist. Íslendingurinn höfðaði því mál á hendur manninum árið 2010. Úr varð að hann vann málið og var heimamanninum gert að greiða Íslendingnum um 130 milljónir króna. Það er þá sem málið tekur aðra og sérkennilega beygju, því nú er Íslendingurinn grunaður um að hafa falsað dómsskjal og lagt fyrir dóminn í fyrrnefndu máli. Því er Íslendingurinn sakaður um að hafa haft áhrif málið með ólögmætum hætti og sætir ákæru vegna þessa. Málið var tekið fyrir hjá dómstólum í dag en Íslendingurinn var látinn laus gegn tryggingu upp á 1,7 milljónir króna. Þá þurfti hann einnig að láta vegabréfið af hendi en þinghaldi hefur verið frestað til 29. september.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira