Neysluskattar háir og óskilvirkir hér á landi 13. desember 2012 08:00 Haraldur I. Birgisson
Tollar eru tæplega þrefalt hærri á Íslandi en í helstu nágrannalöndunum, þá eru neyslustýringaráhrif meiri og skilvirkni minni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Framkvæmdastjórinn segir endurskoðunar þörf. Tollar hér á landi eru tæplega þrefalt hærri en þeir eru að meðaltali á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Þá eru neyslustýringaráhrif þeirra meiri hér og skilvirkni minni. Þetta er niðurstaða Viðskiptaráðs Íslands sem hefur gert úttekt á umhverfi tolla, vörugjalda og neysluskatta á Íslandi. Úttektin ber yfirskriftina „Neysluskattar komnir á síðasta söludag“ og kemur út í dag. Haraldur I. Birgisson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir hana leiða í ljós að kerfi neysluskatta hér á landi sé flókið og óskilvirkt þrátt fyrir að skila hinu opinbera tiltölulega litlum tekjum. „Niðurstaðan er því sú að þetta kerfi er óskilvirkt og þungt í vöfum. Það er ekki í takti við það sem gengur og gerist í nágrannalöndum okkar og það mismunar bæði atvinnuvegum og fólki eftir neysluhegðun. Þar að auki skapar það hindranir fyrir alþjóðaviðskipti,“ segir Haraldur og heldur áfram: „Við teljum því að það þurfi að endurskoða þetta kerfi frá grunni.“ Í úttektinni er fjallað um neysluskatta á Íslandi en þeim má skipta í þrennt; virðisaukaskatt, tolla og vöru- og þjónustugjöld og skatt á vörur sem valda ytri áhrifum. Ekki er hins vegar fjallað sérstaklega um síðasta flokkinn en dæmi um vörur sem valda ytri áhrifum eru áfengi, tóbak og eldsneyti. Um hina flokkana er það að segja að Ísland er undir meðaltali OECD-ríkja þegar kemur að skilvirkni virðisaukaskattkerfisins. Þá eru tollar hérlendis hærri, mismuna í meiri mæli og eru þar að auki óskilvirkari en í nágrannaríkjunum. Haraldur bendir á að í nágrannaríkjunum séu tollar og vörugjöld nær einungis lögð á vörutegundir sem valda samfélagslegum kostnaði og landbúnaðarvörur. Hérlendis séu slík gjöld hins vegar lögð á fjölmarga vöruflokka sem engin slík áhrif hafa, eins og byggingarefni, heimilistæki og raftæki. Í skýrslunni er tekið dæmi af heimilis- og raftækjum sem oft bera 7,5% toll, 20 til 25% vörugjald og 25,5% virðisaukaskatt. Heildarskattlagning er því um 62% til 69%, svo há að skatttekjurnar eru minni en sá hagræni kostnaður sem hlýst af skattlagningunni. Loks er í úttektinni varað við því að mismunað sé á milli neysluvara í virðisaukaskattkerfinu. Almennt sé betra að ná fram pólitískum markmiðum, til að mynda því að auka kaupmátt tekjulægri hópa, með beinum aðgerðum fremur en krókaleiðum.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira