Telja að dregið sé úr valdi forsetans 13. desember 2012 09:00 Sérfræðingarnir Hafsteinn Þór Hauksson og Páll Þórhallsson gerðu grein fyrir athugasemdum sérfræðingahóps um drög að stjórnarskrá á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á þriðjudag. fréttablaðið/gva
Fulltrúar í sérfræðinganefnd hallast að því að ný stjórnarskrá dragi úr valdi forseta Íslands. Ekki hafi tekist að skýra hlutverk hans skilmerkilega í endurskoðuninni. Þversögn sé í að forseti með sterkt lýðræðislegt umboð hafi fá verkefni.Fréttaskýring Hver er staða forsetaembættisins samkvæmt frumvarpi um nýja stjórnarskrá? Heldur dregur úr valdi forsetaembættisins frá því sem nú er í frumvarpi um nýja stjórnarskrá, að mati lögfræðinganna Páls Þórhallssonar og Hafsteins Þórs Haukssonar. Þeir sátu í sérfræðingahópi sem fékk það hlutverk að rýna drög stjórnlagaráðs að stjórnarskrá og ræddu kafla tengda forsetanum á fundi nefndarinnar á þriðjudag. Páll Þórhallsson, formaður hópsins, segir að sérkennilegt sé að þjóðkjörinn forseti með sterkt lýðræðislegt umboð hafi í raun fá verkefni, samkvæmt drögunum. Vitnar hann þar í álit Feneyjanefndarinnar, ráðgjafanefndar Evrópuráðsins um stjórnarskrármál, um finnsku stjórnarskrána, en svipað háttar til um finnska forsetann. „Það er svolítið þversagnakennt að vera með þjóðkjörinn forseta með sterkt lýðræðislegt umboð og svo ákaflega fátt sem hann hefur í raun að gera. Að vísu má gera ráð fyrir að það sé ýmislegt, eins og varðandi samskipti við erlend ríki og þjóðhöfðingjahlutverkið, sem getur þróast áfram þó það sé ekki útlistað í stjórnarskránni.“ Úr þessari þversögn mætti bæta með því að forseti væri þingkjörinn, eins og víða í Evrópuríkjum, eða því að fela honum valdheimildir sem gera honum betur kleift að sinna aðhaldshlutverki í stjórnskipaninni, ef kreppa kemur upp. Páll sagði að í frumvarpinu væri flest af formlegu valdi forsetans afnumið og þá væri í raun lítið eftir. Eftir stæði þó þrennt; málskotsréttur, embættisskipanir og aðkoma að stjórnarmyndunum. Málskotsrétturinn væri betur rammaður inn en í núgildandi stjórnarskrá. Möguleikinn á að ákveðinn hluti kjósenda geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu drægi einnig úr mikilvægi hans. Skipan embættismanna væri sömuleiðis rækilega römmuð inn og forsetinn kæmi á milli þings og ráðherra varðandi skipan dómara og saksóknara. Hann skipaði þó formann hæfisnefndar. Það væri helst varðandi stjórnarmyndun þar sem hlutverk forsetans væri skilgreint upp á nýtt. Nefndarmenn spurðu hann út í áhyggjur varðandi misnotkun á þeim heimildum. Páll sagðist skilja þær, en ekki treysta sér til að hafa skoðun á þeim. „Mín tilfinning hefur frekar verið í þá átt að það sé heldur dregið úr völdum og þá er ég að vísa til þessara formlegu valda sem gætu haft þýðingu við óvenjulegar aðstæður.“
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira