Leynilisti Bjartar framtíðar tekinn að skýrast 13. desember 2012 13:26 Heiða Kristín Helgadóttir mun ekki leiða listann í Reykjavíkurkjördæmi norðri.
Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri og varaformaður Besta flokksins, mun ekki leiða lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík norður, heldur verður það önnur kona. Ekki er vitað hvaða kona það verður, en eins og Vísir greindi frá fyrr í dag ríkir leynd yfir framboðslistanum - sem var engu að síður samþykktur af fjölmennri stjórn Bjartrar framtíðar í gærkvöldi. Þó er vitað að Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, mun sitja í 5. sætinu í Reykjavíkurkjördæmi norður en þar mun Óttar Proppé, borgarfulltrúi, einnig taka sæti. Þá er ljóst að þingmaðurinn Róbert Marshall mun leiða listann í Reykjavíkurkjördæmi suðri. Guðmundur Steingrímsson mun svo leiða listann í fjölmennasta kjördæmi landsins, Suðvesturkjördæmi. Freyja Haraldsdóttir mun sitja í öðru sæti í sama kjördæmi. Í þriðja sæti verður Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og formaður BHM. Erla Karlsdóttir varabæjarfulltrúi í Kópavogi og Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri verða í fjórða og fimmta sæti. Árni Múli Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, mun leiða lista flokksins í Norðvesturkjördæmi og Brynhildur Pétursdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna á Akureyri, mun leiða lista í Norðausturkjördæmi. Ekki er vitað hver leiðir lista í öðrum kjördæmum. Björt framtíð hefur aðeins birt listann fyrir Suðvesturkjördæmi en í tilkynningu kemur fram að aðrir listar verða birtir á næstu dögum.
Tengdar fréttir Leynd hvílir yfir framboðslistum Bjartrar framtíðar - Jón leiðir engan lista Björt framtíð neitar að upplýsa hverjir eru á framboðslistum flokksins sem samþykktir voru í gærkvöldi. 13. desember 2012 11:48 Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs Sjá meira
Leynd hvílir yfir framboðslistum Bjartrar framtíðar - Jón leiðir engan lista Björt framtíð neitar að upplýsa hverjir eru á framboðslistum flokksins sem samþykktir voru í gærkvöldi. 13. desember 2012 11:48