Björgunarsveitarmaður til hjálpar vegna Bopha 13. desember 2012 10:55
Lárus Björnsson úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni (ÍA) er nú á leið til Filippseyja þar sem fellibylurinn Bopha gerði mikinn usla í síðustu viku. Lárus verður hluti af viðbragðsteymi Nethope, sem eru regnhlífarsamtök 37 stærstu hjálparsamtaka heimsins og sérhæfa sig í fjarskiptum og tölvutækni á skaðasvæðum. Mun teymið sjá um að koma fyrstu fjarskiptatækjunum á vettvang auk þess að framkvæma þarfagreiningu og meta aðstæður út frá fjarskiptasjónarmiði á þeim svæðum er verst urðu úti. Eftir fellibylinn hefur allt rafmagns- og fjarskiptakerfi á svæðinu legið niðri og reiknað er með að það geti tekið allt að einn mánuð að koma því aftur í gang. Fjarskipti eru mikilvæg í neyðaraðstæðum, enda undirstaða góðrar samhæfingar og stjórnunar aðgerða. Lárus, sem starfar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, er hluti af fjarskiptahópi Björgunarsveitar Hafnarfjarðar sem einnig sinnir fjarskiptamálum Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Á Filippseyjum urðu yfir 5 milljón mans fyrir barðinu á fellibylnum Bopha þegar hann fór yfir landið í síðustu viku. Um 740 manns hafa þegar fundist látnir og tæplega 900 er enn saknað. Milli 250-350 þúsund manns hafa misst heimili sín og það mun taka marga mánuði og jafnvel ár að byggja aftur upp á þeim svæðum sem verst urðu úti.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira