Vilja fá leigubílaskýli í Lækjargötuna aftur 6. september 2012 03:30 Leigubílstjórar segja það bæði tímafrekara og hættumeira að koma næturgestum miðborgarinnar til síns heima eftir að þetta skýli var flutt úr Lækjargötu í Hafnarstræti.Fréttablaðið/Hari „
Fólk getur beðið í þessu skýli í marga sólarhringa án þess að fá leigubíl,“ segir Jóhann Sigfússon, formaður Bifreiðastjórafélagsins Átaks, um safnskýli fyrir leigubílafarþega í Hafnarstræti. Haustið 2009 var safnskýlið, sem þá hafði um langt árabil staðið í Lækjargötu, flutt á núverandi stað. Þar á fólk að safnast í röð til að fá leigubíl á nóttunni um helgar. Á árinu 2010 gekk Jóhann ásamt leigubílstjóranum Árna Arnari Óskarssyni á fund fulltrúa borgarinnar til að ræða þessa breytingu sem þeir töldu afar misráðna. „Þeir sögðust vera búnir að átta sig á að þetta væru mistök en báru við peningaskorti þegar við báðum um að skýlið yrði flutt aftur í Lækjargötu. Borgin virðist enn ekki telja sig hafa efni á að færa skýlið en hefur á sama tíma peninga til að hefja strætisvagnaferðir til Akureyrar,“ segir Jóhann. Núverandi staðsetningu skýlisins segja þeir Jóhann og Árni, sem báðir aka hjá BSR, óhentuga vegna aðkomunnar að því. „Við náum aldrei að keyra alla leið um miðbæinn að þessu skýli án þess að taka upp farþega,“ segir Jóhann og útskýrir þannig hvers vegna fólk geti beðið von úr viti við skýlið í Hafnarstræti án þess að fá leigubíl. Árni segir „furðulegar“ útskýringar og skilningsleysi hafa mætt þeim hjá borginni. „Þeir ætluðust til að við leigubílstjórarnir keyrðum Snorrabrautina, Hverfisgötuna, Lækjargötuna, Geirsgötuna og síðan Tryggvagötuna til að nálgast okkar kúnna í skýlinu í Hafnarstræti. Það er bara aldeilis ekki þannig: Við förum skjótustu og auðveldustu leiðina til að nálgast okkar kúnna; það er að segja Miklubraut, Hringbraut, Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg. Þeir sem losna norðan við koma Sæbrautina,“ segir Árni og kveður hlægilegt að „einhverjir skrifpinnar“ sem þekki ekki málavexti haldi sig geta leyst málin. „Þegar skýlið var við Lækjargötu höfðum við þá reglu að aka ekki um Sóleyjargötu og Fríkirkjuveg með laus-skiltið uppi á nóttunni til þess að fólk væri ekki að reyna að ná bílum þar. Við vorum búnir að ala næstum alla Reykvíkinga upp í því bíða þolinmóðir í skýlinu eftir leigubíl. Þar var skipulag sem virkaði með vörðum sem gættu þess að allt færi fram eins og til var ætlast. Núna er meiri hætta á að fólk rangli beint fyrir bílana hjá okkur til að reyna að stoppa þá,“ segir Jóhann Sigfússon. Ekki náðist tal af verkfræðingi hjá umhverfis- og samgöngusviði sem vísað var á vegna málsins hjá borginni í gær.gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira