Greiddi 950 milljónir fyrir Perluna og vill náttúruminjasafn og kaffihús Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. desember 2012 09:35 Áfram verður tryggður veitingarekstur á efstu hæðinni. Formaður borgarráðs segir vonir standa til að samhliða nátturminjasafni verði kaffihús á jarðhæð Perlunnar.
Borgarstjórn samþykkti í gær að kaupa Perluna af Orkuveitunni, en borgin greiðir 950 milljónir króna fyrir með handbæru fé og því ekki ráðist í lántökur. Vonir standa til að náttúruminjasafn og kaffihús verði á fyrstu hæðinni og þá er stefnt að því að tryggja áfram rekstur veitingastaðar á efstu hæð. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að sú leið að selja fyrirtækið til fjárfesta hafi ekki reynst fær þar sem öll tilboð hafi gert ráð fyrir að byggja hótel eða ráðast í frekari uppbyggingu í Öskjuhlíðinni. „Það er ekki það sem var til sölu þannig að þegar þessi hugmynd kom upp að opna þarna náttúruminjasafn þá var kominn nýr flötur á málinu sem við höfum verið að skoða síðan í sumar," segir Dagur.Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs.Hann segir að búið sé að gera frumkönnun að hugmyndun um um náttúruminjasafn og borgin sé nú í viðræðum við menntamálaráðuneytið um að framleigja hluta Perlunnar til að setja upp metnaðarfulla náttúruminjasýningu. „Við gerum ráð fyrir að næsta ár fari í uppsetningu hennar þannig að sýningin geti opnað snemma árs 2014." Verðið sem Reykjavíkurborg greiðir Orkuveitunni fyrir Perluna er 950 milljónir króna. Í samræmi við nýja eigendastefnu OR einbeitir fyrirtækið sér nú að kjarnastarfsemi sem þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.En er Reykjavíkurborg alveg aflögufær með þessa peninga? „Við þurfum ekki að taka lán fyrir þessu því við eigum þetta í handbæru fé. Það skiptir hins vegar máli að við munum gera leigusamninga um stóran hluta hússins. Orkuveitan hefur auðvitað tapað á hverju ári og borgað með Perlunni í mörg ár. Við vonumst til þess að geta rétt aðeins úr kútnum hvað það varðar. Orkuveitan er a.m.k ekki fær um að eiga eignir sem þarf að borga með," segir Dagur. Hann segir að borgin sjái fyrir sér að peningarnir verði endurheimtir með leigutekjum að hluta á löngum tíma. „Við bindum vonir við að þetta hús, með metnaðarfullri náttúruminjasýningu, geti orðið innspýting, bæði fyrir ferðaþjónustuna og ekki síst að þetta verði spennandi viðkomustaður fyrir fjölskyldur og börn," segir Dagur. Lengi hafi vantað safn af þessu tagi.Ekki stór ísbúð Nýlega var samningum um veitingaþjónustu í Perlunni sagt upp, en Dagur segir að þeir verði boðnir út að nýju og vonir standi til að veitingarekstur verði áfram tryggður í húsinu. „Perlan er í dag einn fjölsóttasti ferðamannastaður borgarinnar. Við teljum að hægt sé að byggja á þeirri velgengni og það verði áfram metnaðarfullur veitingarekstur. Hugsanlega bætist við kaffihús á jarðhæðinni í tengslum við safnið, en við sjáum ekki fyrir okkur að þetta verði ein stór ísbúð, heldur að það bætist þarna í flóruna." thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira