Fær ekki að vita hver átti bréfin í Glitni Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. maí 2012 16:51 Guðmundur Jón Matthíasson vildi vita hver átti bréfin í Glitni.
Guðmundur Jón Matthíasson sem stefndi íslenska ríkinu vegna tjóns sem hann varð fyrir þegar hann keypti bréf í Glitni eftir að ríkið tók yfir 75% hlut í bankanum fær ekki upplýsingar um það hver raunverulegur seljandi bréfanna var. Guðmundur er í hópi fólks sem tapaði háum fjárhæðum á kaupum hlutabréfa í Glitni vikuna fyrir þjóðnýtingu bankans. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis sagði frá því fyrir tæpu ári síðan að hópurinn hygðist stefna íslenska ríkinu. Hópurinn teldi sig hafa verið rændur þar sem ráðamönnum hafi verið grafalvarleg staða bankakerfisins ljós en engu að síður leyft kaup og sölu á hlutabréfum í bankanum eftir að ríkið tók 75% hlut yfir í lok september 2008. Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hafi meðal annars sagt í útvarpsviðtali að ekki væri ástæða til að ætla annað en vel myndi ganga hjá Glitni í framtíðinni og ríkissjóður myndi innan tíðar losa sig við hlutabréfin og vonandi hafa af því fjárhagslegan ávinning. Guðmundur höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu og Kauphöll íslands vegna tjóns sem hann varð fyrir þegar bankinn féll svo endanlega og skilanefnd var sett yfir stjórn hans. Eftir að hann höfðaði málið óskaði hann eftir því að Kauphöll Íslands og Glitnir veittu upplýsigar um það hver hefði í raun átt þessi bréf. Glitnir hafnaði þeirri kröfu, annars vegar á þeirri forsendu að bankaleynd væri í gildi en hins vegar vegna þess að Guðmundur Jón hefði ekki lögvarða hagsmuni af því að fá þessar upplýsingar. Guðmundur Jón væri í máli gegn íslenska ríkinu vegna þess að eftirlitsskylda hefði brugðist. Hann væri ekki í máli gegn þeim sem seldi bréfin og því skipti engu máli hver átti þau.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira