Ætla að stefna ríkinu vegna þjóðnýtingar Glitnis 19. júní 2011 19:33
Hópur fólks sem tapaði milljörðum á kaupum hlutabréfa í Glitni vikuna fyrir þjóðnýtingu bankans hyggst stefna ríkinu. Hópurinn segist hafa rændur þar sem ráðamönnum hafi verið grafalvarleg staða bankakerfisins ljós en engu að síður leyft kaup og sölu á hlutabréfum í bankanum. Hinn 29. september 2008 ákvað íslenska ríkið að leggja Glitni til nýtt hlutafé að upphæð 600 milljónir evra og varð með því eigandi 75% hlutar í bankanum. Þetta var Glitnisleiðin svo kallaða og töldu margir að bankanum hefði þar með verið bjargað. Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, sagði í útvarpsviðtali síðar sama dag að ekki væri ástæða til að ætla annað en vel myndi ganga hjá Glitni í framtíðinni og ríkissjóður myndi innan tíðar losa sig við hlutabréfin og vonandi hafa af því fjárhagslegan ávinning. En Glitnir féll, líkt og hinir bankarnir, aðeins um viku síður. Engu að síður var opið fyrir viðskipti með hlutabréf í Glitni hjá Kauphöllinni, þessa örlagaríku viku fyrir hrun. „Þarna er bara saklaust fólk sem sér kauptækifæri í þessum banka og telur þetta vera orðin tryggasta banka landsins. Það kaupir þarna í góðri trú hlutabréf í bankanum til þess eins að horfa upp á það að ríkið lætur bankann fara á hausinn sjö dögum síðar," segir Guðmundur Jón Matthíasson sem fer fyrir hópi fólks sem hefur í rúmt ár undirbúið að stefna ríkinu fyrir þá ákvörðun að leyfa sölu á bréfum í Glitni þessa viku. Nú er þeirri vinnu lokið og telur Guðmundur að fyrsta stefnan verði lögð fram innan tíðar. „Hafi ríkt einhver óvissa um framtíð bankans er forkostanlegt að ríkið og stofnanir þess eins og Fjármálaeftirlit og Seðlabanki skuli opna fyrir viðskipti með bréf í bankanum. Hvers á fólkið á götunni að gjalda," spyr Guðmundur.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira