Byssueign landans skilar Íslandi 15. sæti heimslistans Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. desember 2012 06:00 Upptæk vopn Þótt byssueign sé með því mesta sem gerist í heiminum hér á landi er hún að mestu talin skýrast af veiðum. Fréttablaðið/Anton
Ísland er í 15. til 16. sæti á lista yfir þau lönd þar sem skotvopnaeign er hvað mest meðal almennings. Efstu sætin verma Bandaríkin, þar sem vopnaeign er langalgengust, Jemen, Sviss og svo Finnland. Á vefnum Gunpolicy.org, sem hýstur er við Háskólann í Sydney í Ástralíu, er að finna samantekt um byssueign í 179 löndum, hvort heldur sem er hjá opinberum aðilum eða almenningi. Þá er gerð tilraun til þess að áætla fjölda ólöglegra skotvopna á hverjum stað. Hvorki Grænland né Færeyjar eru með í samantektinni.Á Norðurlöndum virðist skotvopnaeign hins vegar hvað algengust í Finnlandi, þar sem 45,7 prósent landsmanna eiga byssu samkvæmt áætlun síðunnar. Finnar verma þriðja til fjórða sæti á heimslistanum hvað þetta varðar. Svíar eru í tíunda sæti þar sem 31,6 prósent er sagt eiga byssu og Norðmenn í 11. sæti með 31,3 prósent. Danir eru svo aftur mun neðar á lista, eða í 54. sæti. Þar er áætlað að 12 af hverjum 100 eigi byssu. Elvar Árni Lund, formaður Skotveiðifélags Íslands, segist gera ráð fyrir að í tölum um byssueign hér á landi fari langmest fyrir haglabyssum og veiðirifflum. Mögulega séu svo líka á sveimi einhver vopn frá þeim tíma að lítið eftirlit var með innflutningi skotvopna og svo séu einstaka menn sem safni byssum. „En okkar félag er náttúrulega um skotveiðar, þannig að við höfum svo sem ekki mikið kynnt okkur málefni byssusöfnunar og byssueigenda, þótt það tengist okkar áhugamáli,“ segir Elvar Árni. „Hér eru hálfsjálfvirkir rifflar bannaðir og skammbyssueign er sem betur fer mjög lítil á Íslandi og þá fyrst og fremst tengd markskotfimi. Yfirgnæfandi vopnaeign hér er því, að því er ég tel, til veiði og íþróttaiðkunar.“ Elvar Árni segir því ekki þurfa að koma á óvart hversu ofarlega Ísland sé á lista eftir því hversu byssueign sé almenn. „Að við séum þarna í takti við aðrar þjóðir á norðurhjaranum sýnir í rauninni hvað þetta er samofið okkar menningu, að stunda veiðar á dýrum merkurinnar.“
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira