Ungmenni tóku út refsinguna með því að hreinsa rusl 7. júní 2012 11:16 Sundlaugin á Svalbarðseyri. Mynd / skjáskot akureyrivikublad.is
Það er óhætt að segja að sveitastjórn Svalbarðarstrandshrepps séu ekki refsiglöð stjórn. Þannig var það sveitarstjórinn sjálfur, Jón Hrói Finnsson, sem kallaði á lögregluna aðfaranótt síðasta laugardags, eftir að þrjú ungmenni brutust inn í sundlaugina á Svalbarðseyri. Í frétt vikublaðsins Akureyri kemur fram að lögreglan hafi handtekið ungmennin eftir dálítið uppþot. Sveitarstjórinn stakk síðan upp á því við lögreglu að í staðinn fyrir að kæra ungmenninn fyrir innbrotið og þeim gerð fjárkrafa vegna kostnaðar við hreinsun á heitum potti, þá gæfist þeim kostur á því að ljúka málinu með því að mæta til vinnu morguninn eftir og hreinsa rusl utanhúss þar sem umhverfisvika stóð yfir hjá sveitarfélaginu. Og það stóð ekki á ungmennunum sem mættu klukkan tíu morguninn eftir, að vísu heldur illa sofin, en þau slógu ekki slöku við í hreinsunarstarfinu samkvæmt vikublaðinu. „Þau stóðu sig með mikilli prýði," sagði sveitarstjórinn Jón Hrói í viðtali við vikublaðið Akureyri. „Það hefði verið vont fyrir okkur að láta brotið óátalið, afleiðing þarf að fylgja broti, en mér fannst þetta betri kostur en að gera fjárkröfu og krakkarnir nýttu tækifærið vel." Hægt er að lesa meira um málið hér.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Sjá meira