Neyðaraðstoð Íslendinga í Gambíu BBI skrifar 7. júní 2012 09:27 Starfsfólk Rauða krossins mælir vannæringu hjá ungu barni.
Rauði krossinn á Íslandi hefur nú í júní dreifingu á matvælum og útsæði til þeirra 50.000 manna sem verst þjást af matarskorti í Gambíu, einu fátækasta ríki heims. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu í kjölfar meiriháttar uppskerubrests. Uppskerubrestur og matvælaskortur í líkingu við ástandið nú hefur ekki verið í Gambíu í um 15 ár. Síðasta hrísgrjónauppskera, aðalfæða landsmanna, hrundi um nær 80% og aðaltekjulindin, jarðhneturækt, um nær 70%. Smábörn eru í mestri hættu á að skaðast vegna matarskortsins og því er lögð áhersla á að hjálpa fjölskyldum með börn yngri en fimm ára og mæðrum sem eru með börn sín á brjósti. Gambía er minnsta land á meginlandi Afríku og tilheyrir svokölluðu Sahel svæði sunnan Sahara eyðimerkurinnar þar sem matarskortur ógnar lífi milljóna manna. Dreifing á útsæði og matvælum til þeirra rúmlega átta þúsund fjölskyldna sem mest þurfa á hjálp að halda hefst um miðjan júní. Miklu skiptir að vinna hratt til að fólk eigi að borða og möguleika á að planta útsæðinu án tafar til að tryggja sér uppskeru í haust. Útsæði eru kartöflur sem eru tilbúnar til niðursetningar.Hlér að störfum í síðustu viku.Sameinuðu Þjóðirnar segja að um 430.000 manns, þar af 74.000 börn undir fimm ára þjáist vegna mikils matvælaskorts í Gambíu. Fjöldi fólks á hvorki mat né útsæði til að planta í akra sína. Börn eru tekin úr skóla og send út að leita að mat, hvar sem eitthvað ætilegt er að finna. Rauði krossinn á Íslandi hefur átt farsæl samskipti við Rauða krossinn í Gambíu síðastliðin 20 ár og hafa meðal annars fjölmörg íslensk ungmenni starfað þar við hjálparstarf. Gambía er minnsta landið á meginlandi Afríku, 11.300 ferkílómetrar að stærð og með 1,8 milljónir íbúa. Um 75% þjóðarinnar hafa lífsviðurværi sitt af landbúnaði. Gambía er eitt af fátækustu ríkjum heims og er í 168 sæti á lífskjaralista Sameinuðu Þjóðanna. Ísland er í 14. sæti á sama lista. Rauði krossinn á Íslandi leiðir starf Alþjóða Rauða krossins í Gambíu. Hlér Guðjónsson, sendifulltrúi, hefur verið í landinu síðastliðnar þrjár vikur og unnið með Gambíska Rauða krossinum að þarfagreiningu og aðgerðaáætlun. Nú í vikunni tók Birna Halldórsdóttir, sendifulltrúi, við af honum og mun hún stýra neyðaraðstoð Íslands fram á haustið og sjá til þess að hún komist til skila. Rauði krossinn á Íslandi gerir ráð fyrir að verja alls 40 milljónum úr hjálparsjóði til neyðaraðstoðarinnar á næstu sjö mánuðum. Almenningur er hvattur til að leggja aðstoðinni lið. Það má gera á raudikrossinn.is eða með því að hringja í söfnunarsímann 904 1500 og gefa þannig 1500 krónur.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira