Æfa viðbrögð við bruna um borð í hvalaskoðunarskipi 7. júní 2012 13:32 Hvalaskoðun. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Almannavarnanefnd Þingeyinga og embætti Lögreglustjórans á Húsavík standa fyrir sjóslysaæfingu á Skjálfanda og á Húsavík laugardaginn 9. júní nk. í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna. Æfð verða viðbrögð við bruna um borð í hvalaskoðunarskipi. Markmið æfingarinnar eru einkum að prófa nýja viðbragðsáætlun sem ber yfirskriftina: „Sjóslys á Skjálfanda: Hópslys á Húsavík – hvalaskoðunarbátar og önnur farþegaskip". Fjarskiptamál verða könnuð sérstaklega ásamt flæði þolenda frá slysstað á sjúkrahús. Þá er það meginmarkmið að kanna hvort viðbragðsaðilar í umdæmi lögreglunnar á Húsavík hafi nægar bjargir til að takast á við hópslys á sjó. Undirbúningur æfingarinnar hefur staðið yfir um nokkra hríð og byggir á skipulagi og fræðslu fyrir þátttakendur, sem eru lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, starfsmenn hvalaskoðunarskipa, deildir Rauða kross Íslands og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Samráðshópur áfallahjálpar í umdæminu mun einnig taka þátt í æfingunni. Fræðslan er í höndum ráðgjafa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslu, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Slökkviliði Akureyrar, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á Akureyri, Rauða krossi Íslands og Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Neyðarlínan mun sjá um boðun viðbragðsaðila til æfingarinnar og verður boðunaræfing haldin fimmtudaginn 7. júní nk. Sjóslysaæfingin verður sett í íþróttahöllinni á Húsavík kl. 9.00 að morgni laugardagsins 9. júní og er gert ráð fyrir að rýnifundur vegna æfingarinnar hefjist að henni lokinni kl. 13.30 sama dag. Söfnunarsvæði slasaðra verður í húsnæði Björgunarsveitarinnar Garðars en jafnframt verður fjöldahjálparstöð opnuð í Borgarhólsskóla. Búast má við að umferð um hafnarsvæðið verði takmörkuð meðan á æfingu stendur.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira