Unga fólkið heldur uppi vinnslu 21. júní 2012 06:00 Sextíu ungmenni hafa verið ráðin til starfa og engar sumarlokanir eru fyrirhugaðar. fréttablaðið/valli
Full starfsemi verður í fiskiðjuverum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi í sumar. Á meðan starfsfólk fiskiðjuveranna er í sumarleyfum standa skólanemar vaktina. Á Vopnafirði hefur vinnsla á uppsjávarfiski legið niðri frá því að vinnslu á loðnu lauk þann 4. mars og hefur starfsfólkið verið í sumarfríi að undanförnu. Stefnt er að því að hefja veiðar á síld og makríl í lok mánaðarins og vinnsla ætti því að hefjast þar að nýju í byrjun næsta mánaðar, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins. Að sögn Torfa Þorsteinssonar, framleiðslustjóra HB Granda, hafa um 60 ungmenni verið ráðin til starfa í fiskiðjuverinu á Norðurgarði í Reykjavík í sumar og á Akranesi er fjöldinn um tuttugu og fimm. Líkt og í fyrra verður ekki gert hlé á starfseminni á þessum stöðum. Magnús Róbertsson, vinnslustjóri HB Granda á Vopnafirði, segir að vinnsla í uppsjávarfrystihúsinu hefjist í byrjun júlí en flestir starfsmanna í vinnslunni nýttu hléið, sem verið hefur frá því að loðnuvertíðinni lauk, til að fara í sumarleyfi. Þrátt fyrir vinnsluhlé munu um 40 til 45 ungmenni starfa við vinnslu á síld og makríl á Vopnafirði í sumar þannig að þegar á heildina er litið munu allt að 130 skólanemar starfa við sumarafleysingar hjá félaginu í sumar. - shá
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira