Tíu ljósmyndarar stefna menntamálaráðherra og þjóðminjaverði 14. desember 2012 11:50
Tíu fyrrverandi ljósmyndarar Tímans hafa ákveðið að stefna Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra og Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði. Tilefnið er varsla Þjóðminjasafnsins á ljósmyndasafni Tímans. Ljósmyndararnir telja að safnið hafi borist í hendur Þjóðminjasafnsins með ólögmætum hætti, þar eigi sér stað ólögmæt not á safninu og þeir hafi verið sviftir umráða- og höfundarrétti sínum. Þetta kemur fram á vef Blaðamannafélags Íslands, en félagið rekur málið fyrir ljósmyndarana. Ljósmyndarnir vilja að myndasafnið verði fært yfir til Ljósmyndasafns Reykjavíkur.Í tilkynningu á heimsíðunni kemur eftirfarandi fram: Málavextir eru þeir að á 10. áratug síðustu aldar var samið við fyrirtækið Frjálsa fjölmiðlun ehf. um útgáfu á Tímanum og var það félag því síðasti vörsluhafi filmu- og myndasafnsins. Bú Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 2. júlí 2002 og var Sigurður Gizurarson hrl. skipaður skiptastjóri þrotabúsins. Á þeim tíma var filmu- og myndasafn Tímans, sem um er deilt í máli þessu, geymt í herbergi að Þverholti 11. Þar sem félagið var orðið gjaldþrota falaðist Inga Lára Baldvinsdóttir, starfsmaður Þjóðminjasafns Íslands, eftir ljósmyndasafninu sbr. bréf hennar til Sigurðar Gizurarsonar dags. 24. nóvember 2003. Á síðari hluta árs 2003 afhenti Sigurður Gizurarson Þjóðminjasafni Íslands safnið sbr. bréf lögmanns stefnenda dags. 21. apríl 2004 og bréf Sigurðar Gizurarsonar dags. 27. apríl 2004. Stefnendur voru afar ósáttir við þessa ráðstöfun enda töldu þeir Sigurð enga heimild hafa til slíkrar ráðstöfunar og kusu frekar að safnið yrði varðveitt annars staðar, þ.e. hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í kjölfarið óskaði lögmaður stefnenda eftir viðræðum um málið við Þjóðminjasafn Íslands. Þrátt fyrir bréfaskrif og viðræður hefur ekki náðst samkomulag og því telja ljósmyndararnir 10 sig ekki eiga annars kosta en að stefna framangreindum aðilum til að fá safnið afhent. Vilji ljósmyndarana stendur til að koma safninu fyrir hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þess ber að geta að Þjóðminjasafn Íslands hefur afhent óviðkomandi ljósmyndir úr umræddu ljósmyndasafni til notkunar án samþykkis stefnenda enda liggur enginn samningur fyrir á milli stefndu og stefnenda um nýtingu. Það er Blaðamannafélag Íslands sem rekur málið fyrir hönd ljósmyndaranna.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira