Hægt er að misnota nær allan reiðbúnað 11. desember 2012 05:30 Nýleg skýrsla Matvælastofnunar um munnmeiðsl keppnishesta hefur orðið kveikja að líflegum umræðum meðal hestamanna. Fréttablaðið/Stefán
Hestamenn rífast um ágæti tannröspunar og notkun méla með tunguboga. Ný rannsókn bendir til að mélin meiði. Hestamenn segja frekari rannsókna þörf. Skýrsluhöfundur vonar að mál þokist í rétta átt. Taka þurfi á undirliggjandi vanda. Hestamenn deila hart um ágæti þess að banna notkun stangaméla með tunguboga. Þannig eru líflegar umræður um málið og önnur munnmein hesta á spjallvef Hestafrétta. Í nýlegri skýrslu Matvælastofnunar er lagt til að bregðast við áverkum í munni keppnishesta með því að banna slík mél. Skýrslan, sem var birt í byrjun mánaðarins, tók til skoðunar á keppnis- og sýningarhestum á Landsmóti hestamanna og Íslandsmóti í hestaíþróttum á þessu ári. Í ljós komu áverkar og erting í húð í tannlausu bili í munni hesta undan bitinu á mélið. Sigurbjörn Bárðarson, hestamaður og knapi, segir að beita megi öllum búnaði illa og þannig að valdi skaða. „Hægt er að ganga of langt í notkun á næstum öllum reiðbúnaði. Veldur hver á heldur,“ segir hann og telur að frekari rannsókna sé þörf. „Ekkert hefur verið kannað hjá útreiðarmönnum hvort þessir áverkar séu almennir. Þetta þarf að kanna betur, en um leið full ástæða til að gefa gaum niðurstöðunni í tengslum við þetta mótahald.“ Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun og höfundur skýrslunnar sem út kom í byrjun mánaðarins, telur að fullyrðingar um að tungubogamél meiði ekki nema í keppni séu ágiskanir. „Ég vil láta banna þetta í keppni því þar tel ég mesta hættu á að þessi mél skaði hesta. En ég tel að það geti líka gerst í almennri reið því allar sömu forsendur eru fyrir hendi. Menn geta sett sama þrýsting á hest í útreiðum og gert er í keppni. Í öllu falli þarf að nota þetta mjög varlega,“ segir hún. Með því að banna umrædd mél gæti dregið mjög hratt úr meiðslum á kjálkabeini hesta, en það segir Sigríður bara einn þeirra þátta sem séu til skoðunar til að bæta munnheilsu hesta. Umræðan fari fram á vettvangi velferðarnefndar Landssambands hestamannafélaga og innan félagasamtaka. Fram kemur á vef Matvælastofnunar að velferðarnefndin hafi nú lagt til að stangir með tunguboga verði bannaðar í tvö ár „og þá metið aftur hvort áverkar á tannlausa bilinu hafi minnkað“. Aukin umræða um velferð hesta og endurskoðun á notkun á búnaði og aðbúnaði í keppni vonar Sigríður hins vegar að verði til góðs. „Ég trúi ekki öðru en að þokist í rétta átt,“ segir hún.olikr@frettabladid.is
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira