"Ríkisstjórnin búin - ekki með tryggan meirihluta" 22. desember 2012 12:08
Skattalækkunartillögur stjórnarandstöðunnar á taubleyjum og smokkum og voru óvænt samþykktar á Alþingi í gær þvert á vilja ríkisstjórnarinnar. Hlé var gert á atkvæðagreiðslum þegar í ljós kom að ekki voru nægilegar margir stjórnarliðar í þinghúsinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir þetta táknrænt fyrir stöðu ríkisstjórnarinnar sem hafi lengur meirihluta fyrir eigin tillögum. Síðasta þingfundi fyrir jólafrí var slitið klukkan fimm mínútur yfir þrjú í nótt en þá hafði fundurinn staðið yfir í tæpar sautján klukkstundir. Fjölmörg lagafrumvörp voru afgreidd þar á meðal bandormur ríkisstjórnarinnar, breytingar á fæðingar- og foreldraorlofi, sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum og barnalög. Hlé var gert á atkvæðagreiðslum í nótt þegar í ljós kom að ekki voru nægilega margir stjórnarliðar í þinghúsinu til að styðja tillögur ríkisstjórnarinnar. Þrjár breytingartillögur stjórnarandstöðunnar voru því óvænt samþykktar - tillögur um skattalækkanir á taubleyjum og smokkum og þá taka barnalög gildi 1. janúar en ekki 1. júlí eins og frumvarp innanríkisráðherra gerði ráð fyrir. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingkona sjálfstæðismanna, segir það táknrænt fyrir stöðu ríkisstjórnarinnar að hún hafi misst meirihluta með þessum hætti. „Ég túlka þetta þannig að ríkisstjórnin er í rauninni búin. Hún er ekki með tryggan meirihluta fyrir þeim tillögum sem hún vill koma í framkvæmd. Þó þetta séu ekki stærstu tillögurnar sem við vorum að greiða atkvæði um, þá er þetta mjög táknrænt og sýnir það þegar ríkisstjórnin getur ekki lengur reitt sig á eigin meirihluta og ekki heldur þá sem hún hefur yfirleitt getað leitað til, Hreyfingarinnar eða Bjartrar framtíðar, þá fer eins og fór í gær. Ég myndi segja að þetta væri enn ein vísbending um það að það er í raun engin ríkisstjórn í landinu. Hefur þetta gerst áður svo menn muna? „Ég man allavega ekki eftir því með þessum hætti, en mín þingreynsla er ekki sú lengsta og ég hef ekki haft tækifæri til að flétta því upp en þetta er mjög sjaldgæft ef þetta hefur gerst áður," segir hún.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Sjá meira