Skiptir öllu að fara eftir leiðbeiningum BBI skrifar 27. desember 2012 17:23
Flugeldarnir eru ekki hættulausir og algengt að fólk brenni sig þegar það er að umgangast þá. Hiti sjóðandi vatns er 100°C en þegar flugeldum er skotið upp geta þeir gefið frá sér hita á bilinu 800 - 1200°C. Leiðbeiningarnar á flugeldum taka mið af þessari hættu og því skiptir öllu máli að fara eftir þeim í hvívetna. Flest slysin stafa af því að fólk ber sig ekki rétt að og notar ekki þann sjálfsagða hlífðarbúnað sem flugeldagleraugu og skinn- eða ullarhanskar eru. Fikt með flugelda er nokkuð algengt hjá unglingsstrákum og mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um það. Alvarlegir áverkar hafa orðið við þá iðju þegar hlutir springa í höndum þeirra og ekki nema tæp þrjú ár síðan að ungur maður lést hér á landi þegar hann var að búa til sína eigin rörasprengju sem á í raun ekki neitt skylt við flugelda nema að púðrið er tekið úr þeim og jafnvel einhverju bætt við. Til að áramótin megi verða ánægjuleg og slysalaus er æskilegt að kynna sér neðangreindar ráðleggingar sem teknar eru af heimasíðu tryggingafélagsins Vís. - Gætið vel að börnum, þau þekkja hætturnar ekki eins vel og fullorðnir. - 12 ára og yngri mega ekki kaupa neinar flugeldavörur og mjög takmarkað er hvað 12 til 16 ára mega kaupa. Eldri hópurinn má kaupa vörur sem ekki eru nein aldurstakmörk á, t.d. þær sem ætlaðar eru til notkunar innanhúss og nota má allan ársins hring. - Flugeldavörur eru ekki leikföng en varanlegur heyrnarskaði hefur orðið þegar fólk hefur verið hrekkt með þeim. - Hugið að dýrum í kringum áramótin, þau hræðast oft hljóðin og ljósin. - Áfengi og flugeldar fara aldrei saman. Margir virða þetta ekki og hafa einkum karlmenn slasað sig af þessum sökum. - Flugelda á að geyma á þurrum stað og þar sem börn ná ekki til. Ekki er mælt með að geyma þá milli ára. - Lesið vel allar leiðbeiningar sem fylgja flugeldum áður en skotið er upp. - Hlífðargleraugu eiga allir að nota, sama hvort þeir eru að skjóta upp eða bara að horfa á. - Hendur þeirra sem skjóta upp eða eru með handblys eru best varðar með skinn- eða ullarhönskum. - Þegar skotið er upp á að geyma flugeldana fjarri þeim stað sem skotið er upp á. - Aldrei má geyma flugeldavörur í vasa. - Skjótið upp á opnu svæði í a.m.k. 20 m fjarlægð frá húsum, bílum og fólki og látið þá sem fylgjast með standa vindmegin við skotstað. - Aldrei má kveikja í flugeldum sem haldið er á, það má eingöngu með sérmerkt handblys. - Rakettur verður að vera í traustri undirstöðu þegar þeim er skotið upp. - Stöðug undirstaða og mikið rými er nauðsynleg fyrir standblys og skotkökur. - Aldrei má halla sér yfir vöru þegar kveikt er í. Tendra skal á kveiknum með útréttri hendi og víkja strax frá. - Ef flugeldur springur ekki skal ekki nálgast hann í nokkrar mínútur þar sem hætta er á að hann rjúki allt í einu upp. Ekki reyna að kveikja aftur í heldur hellið vatni yfir hann. - Brunasár á að kæla strax með 15-17°C vatni.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Fleiri fréttir Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Sjá meira