Býst við fleiri uppsögnum um næstu mánaðamót Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. desember 2012 11:51 Elsa Friðfinnsdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Laun hjúkrunarfræðinga hafa skerst það mikið á síðustu árum að þeir hafa í raun unnið launalaust í eitt af síðustu fimm árum. Þetta fullyrðir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og jafnframt að búast megi við fleiri uppsögnum um næstu mánaðarmót ef ekkert verði gert. Um tvö hundruð og sextíu hjúkrunarfræðingar sögðu upp störfum á Landspítalanum fyrir síðustu mánaðarmót meðal annars vegna óánægju með laun. Það er um fimmtungur þeirra hjúkrunarfræðinga sem starfa á spítalanum. Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að hjúkrunarfræðingar hafi fundið mikið fyrir sparnaðinum á Landspítalanum og hann haft veruleg áhrif á laun þeirra. „Það er alveg ljóst að eins og fram hefur komið hjá forstjóra þegar búið er að skera niður um 32 milljarða á fimm árum þá verður það ekki gert öðruvísi en að ganga inn í laun starfsmanna, því það er 70% af rekstarkostnaði, og hjúkrunarfræðingar eru um 30% af öllum mannaflanum þannig það er tiltölulega einfalt reikningsdæmi að sjá það og finna það út að til þess að ná þessum sparnaði á fimm árum þá þýðir það að hjúkrunarfræðingar, eða af launum hjúkrunarfræðingum hvers og eins, hefur sparast um milljón á ári. Sem þýðir bara það að á fimm árum má segja að hver hjúkrunarfræðingur hafi unnið eitt árið launalaust," segir hún. Elsa segir fleiri en einn þátt hafa haft þau áhrif að laun hjúkrunarfræðinga hafi lækkað á þessum tíma. „Annars vegar sem sagt hafa stofnanasamningar ekki skilað hækkunum á dagvinnulaunum og hinsvegar hefur breyting á skipulagi deilda minna vaktaálag og nánast engin yfirvinna leitt til lækkunar á heildarlaunum." Þá telur hún að búast megi við fleiri uppsögnum frá hjúkrunarfræðingum um næsta mánaðarmót ef ekki verði brugðist við. „Ég er hrædd um að ef að ekki verður komin lausn í málið, viðunandi lausn, þá muni fleiri segja upp um næstu mánaðarmót," sagði Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Fleiri fréttir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Sjá meira