Óalgengt að konur séu lagðar inn með morgunógleði Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. desember 2012 13:51 Ófrískar konur með morgunógleði fá oftast þjónustu á göngudeild nú til dags. „
Við hérna á Landspítalanum sjáum svona sjúklinga reglulega," segir Ebba Margrét Magnúsdóttir, kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir um morgunógleði ófrískra kvenna. Eins og öll heimsbyggðin hefur séð var Katrín, eiginkona Vilhjálms Bretaprins, lögð inn á spítala í síðustu viku með morgunógleði, en hún er barnshafandi. Ebba Margrét segir algengt að konur fái morgunógleði, en einungis lítið hlutfall kvenna þurfi innlögn á spítala. „Við gefum þeim vökva í æð, sumar eru það slæmar að þær þurfa innlögn þó að það sé sjaldgæfara nú," segir Ebba. „Við erum farin að sinna þessu meira sem göngudeildarþjónustu, konur missa oft mikið úr vinnu og þetta veldur mikilli vanlíðan," segir Ebba. Ebba segir að þegar mikil morgunógleði geri vart við sig sé mikilvægt að sónarskoða og vera viss um að það sé eðilileg þungun til staðar. Þá segir hún að morgunógleði sé algengari þegar konur gangi með fleira en eitt barn. „Og þetta er ekki bara morgunógleði, þetta er stundum ógleði allan daginn," segir hún. „Þessar konur þurfa stuðning og skilning, vökva og ógleðistillandi lyf og þannig er þeim hjálpað í gegnum þessar erfiðu vikur. Þetta lagast oft eftir fyrstu tólf vikurnar þótt sumar upplifi oft ógleði allar vikurnar," segir Ebba.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Sjá meira