Innlent

Höndin fór í færibandið

Grindavík
Grindavík Mynd/Rósa
Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækisins Vísi í Grindavík lenti með hægri höndina í færibandi á laugardag. Fiskur hafði safnast upp við enda færibandsins og ætlaði starfsmaðurinn að ýta honum frá með þeim afleiðingum að hönd viðkomandi klemmdist milli pappaspjalds og rennu á bandinu. Í fyrstu var talið að starfsmaðurinn hefði handarbrotnað og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar kom í ljós að höndin var óbrotin en mikið marin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×