Smíðakennari hraktist úr starfi vegna ömurlegra vinnuaðstæðna í Laugarnesskóla Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. desember 2012 15:41 Laugarnesskóli.
Reykjavíkurborg er bótaskyld vegna fjártjóns sem smíðakennari varð fyrir þegar hann þurfti að hætta kennslu í Laugarnesskóla, langt fyrir aldur fram, vorið 2005. Maðurinn var kennari að aðalstarfi um árabil. Hann hóf störf sem handmenntakennari við Laugarnesskóla 1989, en lét af störfum vorið 2005. Mál þetta snýst um það að maðurinn telur að hann hafi hrakist úr starfi vegna þess að vinnuaðstæður hafi verið óboðlegar og gert honum ókleift að starfa, vegna asma, sem hann er haldinn. Kennarinn var í fullu starfi frá byrjun, en í stefnu segir að hann hafi oft verið frá vegna veikinda. Það voru einkum aðstæður í smíðastofu skólans sem maðurinn gerði athugasemdir við. Í smíðastofunum hafi ekki verið loftræsting og það hefði verið fúkki. Það hafi verið röð með opnanlegum gluggum uppi í kverk, en það hefði myndast hvirfill inni í stofunni ef gluggarnir voru opnaðir. Þá hefði vantað afsog frá vélunum. Hann kvaðst hafa gert margar tilraunir til að fá skólastjórnendur til að lagfæra aðstöðuna, en það hefði ekki verið gert. Myndmenntastofan hefði ekki verið betri fyrir sig, þar hefði verið sveppur í gluggum. Í dómnum kemur fram að málsgögn sýni að heilsa mannsins hafi lagast eftir að hann hætti störfum. Matsmenn dragi þá ályktun af gögnum og atvikum, svo og eigin skoðun á kennaranum, að vinnuaðstæðurnar í smíðastofunni í Laugarnesskóla hafi haft neikvæð áhrif á heilsu hans. Skýrslur matsmannanna fyrir dómi sýni að þeir telji að maðurinn gæti og hefði getað unnið við smíðakennslu við betri aðstæður en voru í skólanum. Sömu ályktun hafi Davíð Gíslason, sérfræðingur í lyflækningum og ofnæmissjúkdómum, dregið en Davíð hefur oft annast stefnanda í veikindum hans. Hann tók þó fram að hann hefði aldrei skoðað aðstæður í skólanum.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira