"Ég læt mig ekki dreyma um að það sé nokkur tilviljun í þessu máli" 18. desember 2012 15:08 Árni Páll Árnason
Árni Páll Árnason varaformaður utanríkismálanefndar segir tillögu fjögurra stjórnarandstæðinga og eins stjórnarþingmanns, um að fresta aðildarviðræðum við Evrópusambandið, séu krampakennd viðbrögð afla í þjóðfélaginu sem megi ekki til þess hugsa að þjóðin fái að taka frjálsa ákvörðun í málinu í ljósi staðreynda. Hann segir tillöguna hins vegar engu breyta í stöðunni. „Tillagan verður nú væntanlega ekki samþykkt af nefdinni í heild. Ef hún á að fara inn í þing, þá verður hún að fara í nafni þeirra þingmanna sem að henni standa. Þá fær hún venjulega framgang, eins og venjulegt þingmál. Ég treysti því að Vinstri Grænir vinni eftir þeim stjórnarsáttmála sem við höfum unnið eftir þetta kjörtímabil," segir hann. Þessi tillaga verði ekki flutt af utanríkismálanefnd og það verði að koma í ljós hvað verði um málið í þinginu. „Ég túlka þetta ekki öðruvísi en krampakennd viðbrögð afla í samfélaginu, sem mega ekki til þess hugsa að þjóðin fái að taka ákvörðun, á forsendum staðreynda, um það hvernig hún vill haga samskiptum Íslands við önnur ríki." Árni Páll segir að svo virðist sem öflin á bakvið þennan tillöguflutning óttist að staðreyndir málsins komi í ljós að loknum viðræðum við Evrópusambandið. „Og að fólk fái allar upplýsingar um það hvað í aðildarviðræðum felist," segir hann.Heldurðu að það sé tilviljun að þetta komi upp í dag, nú er utanríkisráðherrann í Brussel að opna sex nýja kafla í aðildarviðræðunum? „Ég læt mig ekki dreyma um það að það sé nokkur tilviljun í þessu máli."
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira