Enn leynd yfir skyndilegri brottvikningu bæjarstjóra Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 19. desember 2012 18:30
Enn ríkir þögn um það hversvegna bæjarstjóranum á Akranesi var skyndilega vikið frá störfum um helgina. Samkvæmt heimildum fréttastofu snýst málið um dagpeninga og aksturskostnað bæjarstjórans. Ekkert hefur verið gefið upp um ástæður þess að starfandi bæjarstjóra á Akranesi var skyndilega vikið frá störfum tímabundið á sunnudaginn. Jón Pálmi Pálsson, sem verið hefur bæjarritari til fjölda ára var settur bæjarstjóri þegar Árni Múli Jónasson lét af störfum í byrjun nóvember. Á mánudag barst síðan tilkynning frá bæjarstjórn á þá leið að grunur léki á að bæjarstjórinn hafi gerst brotlegur við starfsskyldur sínar. Engar frekari skýringar hafa hinsvegar verið gefnar. Eftir því sem fréttastofa kemst næst snýst málið um það hvernig Jón Pálmi hafi innheimt dagpeninga- og aksturskostnað. Hann hafi sótt fundi sem fulltrúi sveitarfélagsins en um leið haft seturétt á þessum sömu fundum í krafti setu sinnar í ráðum og nefndum á Vesturlandi og á hann einnig að hafa innheimt kostnað fyrir þau störf og því á stundum fengið tvöfaldar- eða jafnvel þrefaldar greiðslur. Samkvæmt heimildum fréttastofu leikur vafi á lögmæti þessa og því var gripið til þess ráðs að rannsaka málið. Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar neitar því staðfastlega að málið snúist um dagpeninga, en vill að öðru leyti enn sem fyrr ekkert tjá sig um málið. Hann segir þó að endurskoðanda og lögmanni bæjarins hafi verið falið að ljúka rannsókn sinni í þessari viku og býst hann við niðurstöðu úr henni á föstudaginn kemur. Í framhaldi af því verði frekari ákvarðanir teknar. Jón Pálmi vildi heldur ekkert tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í dag.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Sjá meira