Framtakssjóðurinn selur 10% hlut í Vodafone til viðbótar Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. desember 2012 16:38
Umframeftirspurn var eftir bréfum í Fjarskipti, móðurfélag Vodafone, í opna hluta hlutafjárútboðs, en því lauk í gær. 10% hlutur í félaginu var til sölu í opna útboðinu. Lokaða hluta útboðsins lauk þann 3. desember og var einnig umframeftirspurn þar. Útboðsgengið var 31,5 krónur á hlut. Samtals bárust áskriftir fyrir 1.652 milljónir króna í þennan hluta eða sem nemur um 1,6 faldri umframeftirspurn miðað við þann 10% hlut sem boðinn var til sölu af Framtakssjóði Íslands. Í lokaða hluta útboðsins mánudaginn 3. desember síðastliðinn bárust samtals tilboð fyrir 9.969 milljónir króna frá fjárfestum. Í þeim hluta voru í boði 40% hlutafjár í félaginu sem voru í eigu Framtakssjóðs Íslands. Samtals bárust því áskriftir fyrir 11.621 milljónir króna eða sem nemur um 2,2 faldri umframeftirspurn miðað við þann 50% hlut sem boðinn var.Ætla að selja samtals 60% Í ljósi umframeftirspurnar mun Framtakssjóður Íslands auka við framboðið og selja til viðbótar sem nemur 10% hlutafjár í Vodafone, eða samtals 60% af hlutafé félagsins. Í lokaða hluta útboðsins verða seldir samtals 164.333.265 hlutir eða sem samsvarar 49% hlutafjár og í opna hluta útboðsins verða seldir 37.053.855 hlutir eða sem samsvarar 11% hlutafjár. Við úthlutun leitaðist Framtakssjóður Íslands við að uppfylla skilyrði kauphallar um skráningu, hámarka söluverðmæti, fá að félaginu sterka langtímaeigendur og stuðla að virkum íslenskum hlutabréfamarkaði. Samtals munu því 201.387.120 hlutir, eða sem samsvarar 60% hlut í félaginu, skipta um hendur í tengslum við töku félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Söluandvirði hlutanna er 6,3 milljarðar króna. Framtakssjóður Íslands á eftir viðskiptin 19,7% hlut í félaginu. Sjóðurinn kom að félaginu í upphafi árs 2010 og hefur gegnt virku eigandahlutverki í félaginu frá þeim tíma. Á tímabilinu var ráðist í umfangsmikla endurskipulagningu á félaginu, bæði hvað varðar rekstur og fjármögnun sem lauk núna á haustmánuðum. Meginmarkmið Framtakssjóðsins voru að félagið uppfyllti skilyrði Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár, þ.m.t. um eignarhald almennra fjárfesta og fjölda hluthafa. Niðurstaða útboðsins er í takt við þau markmið.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Sjá meira